Landsvæðið þar sem dýrin lifa tilheyrir rússnesku fylkjunum eða stjórnsýsluumdæmunum Primorsky og Khabarovsk. Heimamenn nefna þessi stjórnsýslusvæði ásamt Kamtsjatka, Chukotka og Magadan einu nafni Austur-Rússland eða á ensku 'Far East'. Síbería liggur vestan við þetta svæði og nær allt vestur að Úralfjöllum. Hins vegar hefur sú hefð skapast meðal annarra en Rússa að nota nafnið Síbería yfir allt landsvæði Rússlands sem er fyrir austan Úralfjöll þar með talið svæðið þar sem amurtígrisdýrin lifa. Þessi tígrisdýr einnig verið nefnd eftir Mansjúríu í Kína og kölluð mansjúríutígrisdýr. Meðal annars kallaði náttúrufræðingurinn og landkönnuðurinn Przewalsky þau því nafni í skrifum sínum. Í þá daga voru þessir risavöxnu kettir tiltölulega algengir í Mansjúríu en nú teljast aðeins vera innan við 20 dýr þar. Í Ussurilandi handan landamæra Kína og Rússlands eru dýrin vel yfir 300 dýr. Mynd: WWF
Af hverju eru síberíutígrisdýr kölluð því nafni ef þau lifa ekki í Síberíu? Hvaðan kemur nafnið?
Landsvæðið þar sem dýrin lifa tilheyrir rússnesku fylkjunum eða stjórnsýsluumdæmunum Primorsky og Khabarovsk. Heimamenn nefna þessi stjórnsýslusvæði ásamt Kamtsjatka, Chukotka og Magadan einu nafni Austur-Rússland eða á ensku 'Far East'. Síbería liggur vestan við þetta svæði og nær allt vestur að Úralfjöllum. Hins vegar hefur sú hefð skapast meðal annarra en Rússa að nota nafnið Síbería yfir allt landsvæði Rússlands sem er fyrir austan Úralfjöll þar með talið svæðið þar sem amurtígrisdýrin lifa. Þessi tígrisdýr einnig verið nefnd eftir Mansjúríu í Kína og kölluð mansjúríutígrisdýr. Meðal annars kallaði náttúrufræðingurinn og landkönnuðurinn Przewalsky þau því nafni í skrifum sínum. Í þá daga voru þessir risavöxnu kettir tiltölulega algengir í Mansjúríu en nú teljast aðeins vera innan við 20 dýr þar. Í Ussurilandi handan landamæra Kína og Rússlands eru dýrin vel yfir 300 dýr. Mynd: WWF
Útgáfudagur
2.2.2005
Spyrjandi
Ingunn Kristjánsdóttir, f. 1990
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Af hverju eru síberíutígrisdýr kölluð því nafni ef þau lifa ekki í Síberíu? Hvaðan kemur nafnið?“ Vísindavefurinn, 2. febrúar 2005, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=4739.
Jón Már Halldórsson. (2005, 2. febrúar). Af hverju eru síberíutígrisdýr kölluð því nafni ef þau lifa ekki í Síberíu? Hvaðan kemur nafnið? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=4739
Jón Már Halldórsson. „Af hverju eru síberíutígrisdýr kölluð því nafni ef þau lifa ekki í Síberíu? Hvaðan kemur nafnið?“ Vísindavefurinn. 2. feb. 2005. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=4739>.