Sólin Sólin Rís 10:17 • sest 16:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:40 • Sest 15:54 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:12 • Síðdegis: 22:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:36 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er maður lengi að ferðast til Andrómedu ef maður ekur á 60 km hraða á klukkustund?

EÖÞ

Hér á spyrjandi líklega við vetrarbrautina Andrómedu en ekki stjörnumerkið.

Andrómedavetrarbrautin er í um tveggja milljón ljósára fjarlægð. Það þýðir að ljósið frá henni er 2.000.000 ár að ná til jarðar, vitanlega á ljóshraða.

Ljóshraðinn er um 300.000 km á sekúndu. Það jafngildir 9.460.800.000.000 km á ári. Þessa gríðarstóru tölu þurfum við nú að margfalda með fjarlægðinni til Andrómedu til að fá fjarlægðina þangað í kílómetrum. Þá fæst 18.921.600.000.000.000.000 km.

Ef við ætlum svo að keyra þangað á 60 km hraða á klukkustund tæki það 36.000.000.000.000 ár eða 36 þúsund milljarða ára.

Höfundur

Einar Örn Þorvaldsson

háskólanemi og fyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

4.5.2004

Spyrjandi

Páll Sigurðsson

Efnisorð

Tilvísun

EÖÞ. „Hvað er maður lengi að ferðast til Andrómedu ef maður ekur á 60 km hraða á klukkustund?“ Vísindavefurinn, 4. maí 2004, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=4222.

EÖÞ. (2004, 4. maí). Hvað er maður lengi að ferðast til Andrómedu ef maður ekur á 60 km hraða á klukkustund? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=4222

EÖÞ. „Hvað er maður lengi að ferðast til Andrómedu ef maður ekur á 60 km hraða á klukkustund?“ Vísindavefurinn. 4. maí. 2004. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=4222>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...