Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Fidel Castro er pólitískur leiðtogi á Kúbu. Hann fæddist 13. ágúst árið 1926 og sem ungur drengur vann hann á sykurreyrsekrum og fór í skóla til jesúíta og síðan í Belénframhaldsskólann í Havana. Árið 1945 hóf Castro háskólanám og hann lauk laganámi árið 1950. Sem lögmaður í Havana gætti hann hagsmuna hinna fátæku.
Fidel Castro flytur ræðu í Havana árið 1998.
Árið 1952 bauð Castro sig fram til kúbverska þingsins en þáverandi einræðisherra Kúbu, Fulgencio Batista, aflýsti kosningunum Árið 1953 gerðu bræðurnir Fidel og Raul Castro ásamt hópi skæruliða árás á Moncadaherstöðina í Santiago de Cuba. Sú árás var vonlaus og Castrobræður voru fangelsaðir. Árið 1959 var Batista hrakinn frá völdum og flýði hann land. Síðan þá hefur Fidel Castro ráðið ríkjum á Kúbu.
Heimildir og myndir:
Þetta svar er eftir grunnskólanema á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.
Arnar Freyr Valsson og Sævar Bachmann Kjartansson. „Hvað getið þið sagt mér um Fidel Castro?“ Vísindavefurinn, 13. apríl 2004, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=4134.
Arnar Freyr Valsson og Sævar Bachmann Kjartansson. (2004, 13. apríl). Hvað getið þið sagt mér um Fidel Castro? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=4134
Arnar Freyr Valsson og Sævar Bachmann Kjartansson. „Hvað getið þið sagt mér um Fidel Castro?“ Vísindavefurinn. 13. apr. 2004. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=4134>.