Sólin Sólin Rís 10:23 • sest 16:05 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:04 • Sest 15:29 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 12:18 • Síðdegis: 25:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 05:51 • Síðdegis: 18:50 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er stærsti maður í heimi stór?

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

Sá maður sem mælst hefur hæstur í heimi er Robert Pershing Wadlow. Hann fæddist í Alton í Illinoisfylki í Bandaríkjunum þann 22. febrúar 1918.

Wadlow gnæfir yfir samnemendur sína við útskrift úr framhaldsskóla árið 1936

Í fyrstu var fátt sem benti til þess að Wadlow yrði frábrugðinn öðrum börnum því við fæðingu vóg hann 3,8 kg sem er í meðallagi. Hann tók þó fljótlega að vaxa og þyngjast meira en eðlilegt gat talist og 18 mánaða var hann orðinn 28 kíló.

Wadlow bar snemma höfuð og herðar yfir jafnaldra sína og átta ára gamall var hann orðinn 1,83 metrar og 88 kíló. Þessi hraði vöxtur hélt áfram og rétt áður en Wadlow lést í júlí 1940 mældist hann 2,72 metrar á hæð.

Vöxtur Roberts Wadlow frá 8 ára aldri

Þennan mikla vöxt Wadlows má rekja til þess að heiladingull hann framleiddi mikið meira af vaxtarhormónum en eðlilegt getur talist. Nútíma læknisfræði getur tekið á þeim vanda en á fyrri hluta 20. aldar var engin meðferð þekkt.

Samkvæmt Heimsmetabók Guinness er hæsti núlifandi maður Túnisbúinn Radhouane Charbib sem mælst hefur 2,36 metrar á hæð (7 fet og 8,9 tommur). Aðrar heimildir segja hæsta mann í heimi vera Kínverjann Wang Fengjun en heimildum ber ekki saman um hversu hár hann sé. Hann er ýmist sagður vera um 2,36 metrar (7 fet og 9 tommur) eða meira en 8 fet, það er yfir 2,44 metrar.

Hæst núlifandi kvenna samkvæmt Heimsmetabók Guinness er hin bandaríska Sandy Allen en hún er 2,31 metrar á hæð.

Heimildir og myndir:

Höfundur

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

5.4.2004

Spyrjandi

Guðlaugur Halldór Einarsson, f. 1992

Tilvísun

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvað er stærsti maður í heimi stór?“ Vísindavefurinn, 5. apríl 2004, sótt 23. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=4128.

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. (2004, 5. apríl). Hvað er stærsti maður í heimi stór? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=4128

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvað er stærsti maður í heimi stór?“ Vísindavefurinn. 5. apr. 2004. Vefsíða. 23. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=4128>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar