Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Orðið plebbi er notað um ómenningarlegan eða lágkúrulegan mann. Það er stytting á nafnorðinu plebeji í sömu merkingu sem barst hingað úr dönsku plebejer og er eldra í málinu eða frá því snemma á 20. öld. Eins er til lýsingarorðið plebejískur 'lágkúrulegur' fengið frá dönsku plebejisk. Plebbi er vel þekkt í málinu frá því upp úr miðri 20. öld og sömuleiðis lýsingarorðið plebbalegur.
Upprunann er að sækja til latínu. Orðið plebs merkti 'fólk, lýður' og var notað um lægri stéttir Rómarríkis en orðið patricius sem er dregið af orðinu pater 'faðir' var haft um hástéttarfólk. Lýsingarorðið plebeius var þá notað yfir þá sem tilheyrðu almúganum.
Guðrún Kvaran. „Orðið plebbi er í tísku núna en hvað þýðir það?“ Vísindavefurinn, 26. janúar 2004, sótt 22. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=3968.
Guðrún Kvaran. (2004, 26. janúar). Orðið plebbi er í tísku núna en hvað þýðir það? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=3968
Guðrún Kvaran. „Orðið plebbi er í tísku núna en hvað þýðir það?“ Vísindavefurinn. 26. jan. 2004. Vefsíða. 22. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=3968>.