Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Sögnin að elda er til í tvenns konar beygingu veikra sagna. Hún beygist annars vegar eftir öðrum flokki veikra sagna og þá í þátíð eldi/elti. Merkingin er ‛fá til að loga, tendra’. Hún er notuð ópersónulega í sambandinu það eldir … ‛það birtir, dagar’ til dæmis það eldir af degi. Í eldra máli var notað nóttunni eldir í merkingunni ‛það birtir, dagar’.
Það eldir af degi.
Elda beygist einnig samkvæmt fjórða flokki veikra sagna, í þátíð eldaði. Merkingin er þá ‛sjóða mat’.
Mynd: