Sólin Sólin Rís 10:17 • sest 16:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:40 • Sest 15:54 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:12 • Síðdegis: 22:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:36 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaðan kemur orðið lestrarhestur?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Orðið lestrarhestur er tökuorð úr dönsku læsehest og hefur verið notað að minnsta kosti frá því í upphafi 20. aldar. Í Danmörku var orðið áður fyrr talið fremur niðrandi um þann sem mikið liggur í bókum og samheiti við bogorm sem við þekkjum sem bókaormur.

Í nýjum orðabókum virðist læsehest í dönsku hafa fengið hlutlausari merkingu. Í dönsku er einnig talað um læsehaj 'lestrarhákarl', læsejærn 'lestrarjárn' og læseorm 'lestrarorm' en þessi orð hafa ekki borist hingað.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

20.11.2002

Spyrjandi

Jónas Sveinsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið lestrarhestur?“ Vísindavefurinn, 20. nóvember 2002, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=2879.

Guðrún Kvaran. (2002, 20. nóvember). Hvaðan kemur orðið lestrarhestur? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=2879

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið lestrarhestur?“ Vísindavefurinn. 20. nóv. 2002. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=2879>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvaðan kemur orðið lestrarhestur?
Orðið lestrarhestur er tökuorð úr dönsku læsehest og hefur verið notað að minnsta kosti frá því í upphafi 20. aldar. Í Danmörku var orðið áður fyrr talið fremur niðrandi um þann sem mikið liggur í bókum og samheiti við bogorm sem við þekkjum sem bókaormur.

Í nýjum orðabókum virðist læsehest í dönsku hafa fengið hlutlausari merkingu. Í dönsku er einnig talað um læsehaj 'lestrarhákarl', læsejærn 'lestrarjárn' og læseorm 'lestrarorm' en þessi orð hafa ekki borist hingað....