Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Svarið við þessari spurningu er bæði já og nei. Margar ástæður geta legið á bak við þetta atferli kattardýra. Eins og glöggir kattareigendur vita eyðir kötturinn miklum tíma í að snyrta sig. Samkvæmt atferlisrannsóknum er um að ræða allt að helmingi þess tíma sem dýrið er vakandi.
En hver er tilgangurinn með allri þessari snyrtingu?
Í fyrsta lagi eru kettir að fjarlægja hár sem hafa losnað, dautt skinn og ýmis konar óhreinindi úr feldinum. Í öðru lagi sleikja kettir sig þegar þeim er heitt og skilja þá eftir á feldinum munnvatn sem leiðir til kælingar líkama þeirra. Í þriðja lagi fara kettir að sleikja sig þegar þeir eru á einhvern hátt taugaóstyrkir, pirraðir eða hræddir.
Ef kettir sleikja sig óeðlilega mikið getur það verið merki um að þeir séu með einhvers konar húðsjúkdóm eða að flær eða maurar séu í feldinum. Það getur valdið köttum miklum kláða. Kunnugir hafa einnig bent á að þegar einhver köttur hefur betur í landamæradeilum við annan kött gerist sá köttur sem tapaði stríðinu undirgefinn og tekur upp á því að þvo sér í tíma og ótíma!
Jón Már Halldórsson. „Sleikja kettir sig af vana eða þegar þeir eru skítugir?“ Vísindavefurinn, 8. maí 2002, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=2369.
Jón Már Halldórsson. (2002, 8. maí). Sleikja kettir sig af vana eða þegar þeir eru skítugir? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=2369
Jón Már Halldórsson. „Sleikja kettir sig af vana eða þegar þeir eru skítugir?“ Vísindavefurinn. 8. maí. 2002. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=2369>.