Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Krossmarkið er eitt helgasta tákn kristninnar. Menn báru og bera enn kross í keðju um hálsinn, hafa krossa uppi á vegg eða yfir dyrum og svo framvegis. Áður fyrr gerðu menn krossmark yfir öllu sem þeir vildu biðja fyrir eða blessa. Til dæmis gerði fólk krossmark yfir húsdýrum sínum áður en þeim var sleppt á beit. Þá gerðu menn krossmark yfir börnum sínum og sjálfum sér. Var það bæði hugsað til að bægja frá öllu illu og til að helga sig Guði. Margir signa sig áður en þeir fara í hrein föt eftir að hafa verið í baði. Það er meðal annars gert til að minna á skírnina sem er nokkur konar bað.