Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Heilagur Valentínus er nafn yfir tvo, eða jafnvel þrjá, píslarvotta í sögu kirkjunnar. Annar var rómverskur prestur og læknir sem varð fyrir barðinu á Kládíusi II, Rómakeisara, í ofsóknum hans á kristnum mönnum. Hinn var biskupinn af Terní á Ítalíu. Mögulegt er að sögurnar af þessum tveimur mönnum eigi uppruna sinn í einum og sama atburðinum en hafi brenglast í gegnum tíðina. Um þriðja manninn er lítið vitað annað en að hann á að hafa dáið í Afríku.
Heimildir eru sem sagt óljósar og ekki hægt að segja nákvæmlega til um hvenær Valentínus dó, hvort sem hann var einn maður, tveir eða þrír. En sennilegt tímabil er valdatími fyrrnefnds Kládíusar II, 268—270 eftir Krist. Og Valentínus var kristinn.
Valentínusardagur sem svo er nefndur og haldinn hátíðlegur sem dagur kærustupara á uppruna sinn í Evrópu á 14. öld. Síðar virðast Bandaríkjamenn hafa verið einna iðnastir við að halda uppi merkjum þessa dags. Hefðir í kringum daginn, sem að nokkru leyti hefur rekið á fjörur Íslendinga, virðast ekkert hafa að gera með dýrlingana sem báru nafnið Valentínus.
Heimild:
Britannica.com
HMH. „Hvenær dó heilagur Valentínus? Hverrar trúar var hann?“ Vísindavefurinn, 8. nóvember 2000, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=1104.
HMH. (2000, 8. nóvember). Hvenær dó heilagur Valentínus? Hverrar trúar var hann? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1104
HMH. „Hvenær dó heilagur Valentínus? Hverrar trúar var hann?“ Vísindavefurinn. 8. nóv. 2000. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1104>.