Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Almennt er talað um að í mannslíkamanum séu 206 bein. Þar af mynda 80 bein sjálfa beinagrindina en 126 bein eru eins konar fylgihlutir eða viðhengi út frá beinagrindinni. Lærleggurinn er lengsta, þyngsta, sterkasta og stærsta bein beinagrindarinnar. Minnsta beinið er ístaðið, sem er eitt þriggja smábeina í miðeyranu.
Yfirleitt eru þessi þrjú minnstu bein líkamans nefnd samtímis; hamar (malleus), steðji (incus) og ístað (stapes). Nöfnin fá beinin út frá lögun og hlutverki sínu. Skaftið á hamrinum er fest við innra borð hljóðhimnunnar í eyranu. Hausinn á hamrinum myndar liðamót við steðjann sem myndar liðamót við ístaðið sem tengist innra eyra.
Þegar hljóðbylgjur skella á hljóðhimnunni fer hún að titra eða sveflast fram og aftur. Hljóðhimnan hreyfir skaftið á hamrinum sem "lemur" á steðjann sem hreyfir ístaðið. Beinin leiða því titringinn frá hljóðhimnunni gegnum miðeyrað yfir í innra eyra. Hljóðið (titringurinn) magnast einnig upp á þessu ferðalagi yfir smábeinin.
Smábeinin þrjú eru fest inni í holrúmi miðeyrans með eins konar sinum en þarna eru einnig tveir minnstu vöðvar líkamans. Þeir eru tengdir við hljóðhimnuna, hamarinn og steðjann. Ef þessir vöðvar dragast saman verður kerfið stífara og dregur úr getu sinni í að flytja hljóðbylgjurnar (titringinn). Þetta gerist þegar við lendum í miklum og óþægilegum hávaða og á þennan hátt getum við dregið úr heyrnaskemmdum. Ef hávaðinn kemur snögglega eins og til dæmis við byssuskot nær kerfið ekki að bregðast við og slík hljóð geta valdið varanlegum skemmdum.
Stefán B. Sigurðsson. „Hvað heita 3 minnstu beinin í líkamanum?“ Vísindavefurinn, 27. september 2000, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=942.
Stefán B. Sigurðsson. (2000, 27. september). Hvað heita 3 minnstu beinin í líkamanum? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=942
Stefán B. Sigurðsson. „Hvað heita 3 minnstu beinin í líkamanum?“ Vísindavefurinn. 27. sep. 2000. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=942>.