Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Uppruni nafnsins Ítalía er ekki talinn fullljós. Orðið hefur oftast verið tengt latneska nafnorðinu vitulus sem merkir 'kálfur' og á sér til dæmis afkomanda í enska orðinu veal, 'kálfakjöt.' Á oskísku, sem telst til ítalískra mála eins og latína, hét landið Viteliu sem talið er merkja 'land hinna mörgu kálfa'. Einnig hefur verið bent á að landsheitið sé hugsanlega dregið af þjóðflokksheiti, Itali, 'ungu bolarnir'.
Guðrún Kvaran. „Merkir Ítalía 'land kálfanna'? Hver er uppruni nafnsins?“ Vísindavefurinn, 17. ágúst 2000, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=823.
Guðrún Kvaran. (2000, 17. ágúst). Merkir Ítalía 'land kálfanna'? Hver er uppruni nafnsins? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=823
Guðrún Kvaran. „Merkir Ítalía 'land kálfanna'? Hver er uppruni nafnsins?“ Vísindavefurinn. 17. ágú. 2000. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=823>.