Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
ForsíðaHugvísindiMálvísindi: íslenskEr titillinn forseti tekinn úr norrænni goðafræði? Hvenær, hvernig og hvers vegna varð þetta orð fyrir valinu?
Orðabók Háskólans á elst dæmi um orðið forseti frá lokum 18. aldar úr heimild sem tengist stofnun Hins íslenska lærdómslistafélags. Tilgangur félagsins var að fræða landsmenn, m.a. um framfarir og vísindi og bæta bókmenntasmekk þeirra. Forvígismenn félagsins vildu einnig bæta málsmekk manna og í Ritum þess íslenzka lærdómslistafélags (1781-96) má finna talsvert af nýyrðum yfir ýmislegt sem þá var mönnum nýtt og framandi.
Þótt ekki komi það fram í stofnskránni hvernig orðið forseti er þar hugsað er ekki ólíklegt að guðinn Forseti hafi verið kveikjan að notkun þess. Forsæti í merkingunni 'öndvegi, æðsti sess, fundarstjórasæti' er frá svipuðum tíma og það er vel til fundið að kalla þann sem þar situr forseta.
Orðið forseti er náskylt enska orðinu president. Bæði eiga rætur að rekja til latnesku sagnarinnar praesidio 'ég sit fyrir, hef yfirráð, forsjón yfir'.
Guðrún Kvaran. „Er titillinn forseti tekinn úr norrænni goðafræði? Hvenær, hvernig og hvers vegna varð þetta orð fyrir valinu?“ Vísindavefurinn, 17. ágúst 2000, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=822.
Guðrún Kvaran. (2000, 17. ágúst). Er titillinn forseti tekinn úr norrænni goðafræði? Hvenær, hvernig og hvers vegna varð þetta orð fyrir valinu? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=822
Guðrún Kvaran. „Er titillinn forseti tekinn úr norrænni goðafræði? Hvenær, hvernig og hvers vegna varð þetta orð fyrir valinu?“ Vísindavefurinn. 17. ágú. 2000. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=822>.