Margt er álit manna um það hvað sólarljósið sé og allt ljós. Sumir halda ljósið streymi út úr hinum lýsendu líkömum; aftur halda sumir það komi af skjálfta eður bylgjugangi í harla smágjörvu frumefni því er kalla mætti ljósvaka (æter); hyggja menn að ljósvaki fylli allan himingeiminn og segja ljósið kvikni þar við hristinginn, að sínu leyti og hljóðið kviknar við hristingu jarðlofts vors. Vér verðum að fela náttúruspekingunum á vald að skera úr því vafamáli hvurjir að hafi réttara fyrir sér í þessu efni eður að minnsta kosti að koma fram með það er mæli með og í móti báðum þessum getgátum. (Ritverk Jónasar Hallgrímssonar III. Reykjavík: Svart á hvítu, 1989, bls. 322).Fljótlega kom í ljós að þessi ljósvaki var afar undarlegt fyrirbæri. Upphaflega gerðu eðlisfræðingar ráð fyrir að ljósvakinn væri kyrr í alheimi og hann gæti því skilgreint alkyrrt viðmiðunarkerfi. Til að skýra gríðarlegan hraða ljósbylgna þurfti helst að gera ráð fyrir að ljósvakinn væri afar stíft efni en þó hefur hann sem fyrr segir enga tilhneigingu til að hamla hreyfingu hluta. Fyrir löngu var búið að gefa upp á bátinn þá kenningu að jörðin væri miðja alheimsins, heldur er hún á fleygiferð umhverfis sólina. Ef ljósvakinn er kyrr ætti jörðin því að þjóta um hann af miklum hraða en enginn gat mælt þann vind. Michelson og Morley gerðu fræga tilraun sem hefði átt að mæla ljósvakavindinn en hann kom ekki fram. Allt kom fyrir ekki, ljósvakinn reyndist vera hið undarlegasta fyrirbæri sem enginn gat mælt. "Það er eins og náttúran sé með samsæri í gangi til að fela tilvist ljósvakans," sagði Henri Poinarcé rétt um aldamótin 1900, "en slíkt samsæri er í sjálfu sér náttúrulögmál". Tími var kominn til að kasta ljósvakanum fyrir róða og það gerði Albert Einstein fyrstur manna þegar hann setti fram takmarkaða afstæðiskenningu sína árið 1905. Samkvæmt henni er ljósið bylgja sem ferðast með sama hraða, ljóshraðanum, í hvaða viðmiðunarkerfi svo sem litið er á það. Þessi bylgja þarf engan bylgjubera til að berast í, ljósvakahugmyndin er gagnslaus og röng, ljós og aðrar rafsegulbylgjur berast viðstöðulaust um tómarúm og ljósvakinn er ekki til.
Hvað er ljósvaki? Er hann til?
Útgáfudagur
10.8.2000
Spyrjandi
Bragi Kristjánsson
Tilvísun
Stefán Ingi Valdimarsson og Þorsteinn Vilhjálmsson. „Hvað er ljósvaki? Er hann til?“ Vísindavefurinn, 10. ágúst 2000, sótt 3. desember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=767.
Stefán Ingi Valdimarsson og Þorsteinn Vilhjálmsson. (2000, 10. ágúst). Hvað er ljósvaki? Er hann til? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=767
Stefán Ingi Valdimarsson og Þorsteinn Vilhjálmsson. „Hvað er ljósvaki? Er hann til?“ Vísindavefurinn. 10. ágú. 2000. Vefsíða. 3. des. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=767>.