Sólin Sólin Rís 10:26 • sest 16:02 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:04 • Sest 15:19 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:05 • Síðdegis: 13:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 07:12 • Síðdegis: 20:04 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað getið þið sagt mér um drauginn Kampholtsmóra?

Árni Björnsson

Kampholtsmóri hét upphaflega Skerflóðsmóri. Sagt er að nokkru eftir Skaftárelda hafi Eiríkur bóndi á Borg í Hraunshverfi á Eyrarbakka úthýst dreng nokkrum austan úr Skaftafellssýslu. Hann fannst svo drukknaður í tjörn þeirri skammt frá Borg sem heitir Skerflóð. Drengurinn fylgdi síðan Eiríki bónda og sonardætrum hans, svo sem Þuríði formanni, en einkum Salgerði systur hennar sem bjó í Seli í Stokkseyrarhreppi. Þá nefndist hann Selsmóri og var öðru hverju í slagtogi við Móhúsaskottu.

Móri fluttist seinna með fólki af þessari ætt austur að Kampholti í Villingaholtshreppi í Flóa. Hann gerði oft vart við sig á undan bóndanum, meðal annars í Kaupfélagi Árnesinga, og var honum stundum hjálplegur.

Kampholtsmóri: Draugur með bíladellu.

Á síðari hluta 20. aldar varð Kampholtsmóri gripinn bíladellu, líklega fyrstur íslenskra drauga. Hann heldur sig einkum í nánd við Skeiðavegamótin á Suðurlandsvegi og tekur sér stundum far með bílum. Er öllum bílstjórum vissara að tala vinsamlega um hann. Ella á hann það til að skemma vélina eða hjólbarðana. Ótrúlega mörg óhöpp og bilanir þóttu verða á þessum slóðum og var ónærgætni bílstjóra eða farþega við Móra kennt um.

Eitt sinn tók Kampholtsmóri sér far með nágrannabónda upp í Biskupstungur. Þar var brúðkaupsveisla og um kvöldið var bóndi orðinn of drukkinn til að Móri þyrði með honum í jeppanum til baka. Hann varð því að bíða í nokkrar vikur uppi í Tungum þar til ferð féll niður í Flóa.

Frekara lesefni og mynd

Heimildir og mynd

  • Árni Björnsson. Íslenskt vættatal. Rv. 1990 og heimildir sem þar er vísað til.
  • Upplýsingar frá Draugasetrinu á Stokkseyri.
  • Ghost Car. Flickr.com. Höfundur myndar er Lawrence Braun. Myndin er birt undir Creative Commons leyfi.

Höfundur

Árni Björnsson

dr. phil. í menningarsögu

Útgáfudagur

9.3.2007

Spyrjandi

Halldór Haraldsson, f. 1990

Tilvísun

Árni Björnsson. „Hvað getið þið sagt mér um drauginn Kampholtsmóra?“ Vísindavefurinn, 9. mars 2007, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=6526.

Árni Björnsson. (2007, 9. mars). Hvað getið þið sagt mér um drauginn Kampholtsmóra? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=6526

Árni Björnsson. „Hvað getið þið sagt mér um drauginn Kampholtsmóra?“ Vísindavefurinn. 9. mar. 2007. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=6526>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...