Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Á vef Hagstofu Íslands er að finna góðar upplýsingar um fólksfjölda á Íslandi. Oft er miðað við þá skilgreiningu að barn sé einstaklingur sem ekki hefur náð 18 ára aldri. Samkvæmt því má sjá að í lok árs 2005 bjuggu 79.450 börn á Íslandi. Tölur um mannfjölda eru fengnar úr Þjóðskrá. Í tölum um mannfjölda á Íslandi eru ekki taldir einstaklingar sem dveljast á landinu í ótilgreindan tíma (til dæmis ferðamenn).
Á eftirfarandi töflu er að finna upplýsingar um fjölda barna á Íslandi árið 2005 skipt eftir aldri:
Stefán Hrafn Jónsson. „Hvað búa mörg börn á Íslandi?“ Vísindavefurinn, 19. nóvember 2006, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=6388.
Stefán Hrafn Jónsson. (2006, 19. nóvember). Hvað búa mörg börn á Íslandi? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=6388
Stefán Hrafn Jónsson. „Hvað búa mörg börn á Íslandi?“ Vísindavefurinn. 19. nóv. 2006. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=6388>.