- Á heimasíðu Kínversku hagstofunnar (National Bureau of Statistics of China) er áætlað að 1. nóvember 2005 hafi Kínverjar verið 1.306.280.000.
- Á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna (United Nations - Population Division) er áætlað að Kínverjar hafi verið 1.315.844.000 árið 2005.
- Á síðu The World Factbook er áætlað að í júlí 2006 hafi Kínverjar verið 1.313.973.713.
- Á síðunni GeoHive má svo sjá að í október 2006 er áætlað að fjöldi Kínverja sé 1.316.097.671.
Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.