Sólin Sólin Rís 10:26 • sest 16:02 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:04 • Sest 15:19 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:05 • Síðdegis: 13:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 07:12 • Síðdegis: 20:04 í Reykjavík
Sólin Sólin Rís 10:26 • sest 16:02 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:04 • Sest 15:19 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:05 • Síðdegis: 13:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 07:12 • Síðdegis: 20:04 í Reykjavík
LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaðan kemur orðatiltækið að hvetja menn lögeggjan?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Orðasambandið að eggja e-n lögeggjan kemur þegar fyrir í fornu máli. Merkingin var að 'hvetja e-n mjög til að gera e-ð en fara þó að lögum'. Þekktasta dæmið mun vera úr Njáls sögu (98. kafla). "Eggjar móðir vor oss nú lögeggjan," sagði Skarphéðinn Njálsson þegar Bergþóra móðir hans hvatti hann til að fara að lögum eftir víg hálfbróður hans, Höskulds. Hróðný, móðir Höskulds, hvatti hins vegar til hefnda. Sögnin eggja merkir að 'hvetja' og virðist sögnin að hvetja oft notuð í stað eggja í síðari alda máli. Merkingarsviðið hefur einnig víkkað. Að eggja e-n lögeggjan merkir nú að 'hvetja e-n mjög til e-s' án þess að lög komi þar við sögu. Hægt er til dæmis að eggja/hvetja e-n lögeggjan að taka sig á, lesa undir próf og standast þau.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

8.3.2006

Spyrjandi

Kristján Benjamínsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðatiltækið að hvetja menn lögeggjan?“ Vísindavefurinn, 8. mars 2006, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=5692.

Guðrún Kvaran. (2006, 8. mars). Hvaðan kemur orðatiltækið að hvetja menn lögeggjan? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=5692

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðatiltækið að hvetja menn lögeggjan?“ Vísindavefurinn. 8. mar. 2006. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=5692>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvaðan kemur orðatiltækið að hvetja menn lögeggjan?
Orðasambandið að eggja e-n lögeggjan kemur þegar fyrir í fornu máli. Merkingin var að 'hvetja e-n mjög til að gera e-ð en fara þó að lögum'. Þekktasta dæmið mun vera úr Njáls sögu (98. kafla). "Eggjar móðir vor oss nú lögeggjan," sagði Skarphéðinn Njálsson þegar Bergþóra móðir hans hvatti hann til að fara að lögum eftir víg hálfbróður hans, Höskulds. Hróðný, móðir Höskulds, hvatti hins vegar til hefnda. Sögnin eggja merkir að 'hvetja' og virðist sögnin að hvetja oft notuð í stað eggja í síðari alda máli. Merkingarsviðið hefur einnig víkkað. Að eggja e-n lögeggjan merkir nú að 'hvetja e-n mjög til e-s' án þess að lög komi þar við sögu. Hægt er til dæmis að eggja/hvetja e-n lögeggjan að taka sig á, lesa undir próf og standast þau....