Sólin Sólin Rís 10:26 • sest 16:02 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:04 • Sest 15:19 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:05 • Síðdegis: 13:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 07:12 • Síðdegis: 20:04 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaðan kemur nafnið Garður á byggðarlagi á Suðurnesjum?

Svavar Sigmundsson

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Garður.

Garðurinn dregur nafn af Skagagarði, fornum garði sem liggur frá túngarðinum á Útskálum beint yfir að túngarði á Kirkjubóli í Miðneshreppi og girðir af tána á Garðskaga.

Ýmislegt bendir til þess, meðal annars örnefni eins og Akurhús og Gerðahverfi, að þar hafi verið akuryrkja og garðurinn hlaðinn til þess að verja akra og tún fyrir ágangi búfjár.

Gleggst yfirlit um garðinn hefur Kristján Eldjárn skrifað í greininni „Skagagarður - fornmannaverk“ í Árbók Ferðafélagsins 1977, bls. 107-119.

Mynd: Mats: Íslandsmyndasafn © Mats Wibe Lund

Höfundur

Svavar Sigmundsson

fyrrv. forstöðumaður Örnefnastofnunar

Útgáfudagur

21.7.2005

Spyrjandi

Gylfi Guðmundsson

Tilvísun

Svavar Sigmundsson. „Hvaðan kemur nafnið Garður á byggðarlagi á Suðurnesjum?“ Vísindavefurinn, 21. júlí 2005, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=5149.

Svavar Sigmundsson. (2005, 21. júlí). Hvaðan kemur nafnið Garður á byggðarlagi á Suðurnesjum? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=5149

Svavar Sigmundsson. „Hvaðan kemur nafnið Garður á byggðarlagi á Suðurnesjum?“ Vísindavefurinn. 21. júl. 2005. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=5149>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvaðan kemur nafnið Garður á byggðarlagi á Suðurnesjum?

Garður.

Garðurinn dregur nafn af Skagagarði, fornum garði sem liggur frá túngarðinum á Útskálum beint yfir að túngarði á Kirkjubóli í Miðneshreppi og girðir af tána á Garðskaga.

Ýmislegt bendir til þess, meðal annars örnefni eins og Akurhús og Gerðahverfi, að þar hafi verið akuryrkja og garðurinn hlaðinn til þess að verja akra og tún fyrir ágangi búfjár.

Gleggst yfirlit um garðinn hefur Kristján Eldjárn skrifað í greininni „Skagagarður - fornmannaverk“ í Árbók Ferðafélagsins 1977, bls. 107-119.

Mynd: Mats: Íslandsmyndasafn © Mats Wibe Lund ...