Sólin Sólin Rís 10:17 • sest 16:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:40 • Sest 15:54 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:12 • Síðdegis: 22:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:36 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hverjar eru dauðasyndirnar (erfðasyndirnar) sjö?

Haukur Már Helgason og Sigurjón Árni Eyjólfsson

Hinar sjö kristnu höfuðsyndir, eða dauðasyndirnar sjö eru eftirtaldar: Hroki, öfund, reiði, þunglyndi, ágirnd, ofát og munúðlífi. Í Íslensku alfræðiorðabókinni er leti talin upp í stað þunglyndis. Þessar sjö syndir eru ekki taldar upp berum orðum í Biblíunni og því síður nefndar dauðasyndir.

Marteinn Lúther telur upp þessar sjö birtingarmyndir syndarinnar. Hann notar aðra aðgreiningu synda að auki, þrjár birtingarmyndir syndarinnar gagnvart Guði: Vanþakklæti, eigingirni og hroka. Lúther sagðist sjálfur ekki átta sig alveg á greinarmuni synda og dauðasynda.

Fyrir Lútheri er syndin fólgin í manninum en ekki verkum hans – maður verður ekki góður fyrir Lúther þó hann breyti rétt, segja má að aðeins hugurinn að baki gjörðinni skipti máli.

Kaþólskir nota orðið galla eða löst yfir það sem Lúther nefnir synd en segja syndir drýgðar í einstökum verkum. Gallar í fari manna geta stuðlað að því að þeir drýgi synd. Sömu sjö atriði teljast til helstu galla mannsins meðal kaþólskra.

---

Höfuðsyndirnar eða -lestirnir sjö eru andstæðir höfuðdyggðunum sjö, sem eru ekki heldur nefndar sem slíkar í Biblíunni. Höfuðdyggðirnar sjö eru: Viska, hófstilling, hugrekki, réttlæti, von, trú og kærleikur. Meira er lagt upp úr þessum dyggðum í kaþólskri siðfræði en lútherskri.

Nýverið var gerð könnun á vegum Gallup á því hvað Íslendingar meti helst í eigin fari og annarra. Í Tímariti Máls og menningar (2. tbl. 2000) eru niðurstöður hennar túlkaðar svo að nýju íslensku höfuðdyggðirnar séu: Hreinskilni, dugnaður, heilsa, heiðarleiki, jákvæðni, traust, fjölskyldu- og vináttubönd.

---

Heimildir:

Sigurjón Árni Eyjólfsson. Guðfræði Marteins Lúthers. Reykjavík, 2000 (s. 385—391, 433—435).

Höfundar

heimspekingur og fyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins

stundakennari í guðfræði við HÍ

Útgáfudagur

9.6.2000

Spyrjandi

Sesselja Guðmundsdóttir

Tilvísun

Haukur Már Helgason og Sigurjón Árni Eyjólfsson. „Hverjar eru dauðasyndirnar (erfðasyndirnar) sjö?“ Vísindavefurinn, 9. júní 2000, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=505.

Haukur Már Helgason og Sigurjón Árni Eyjólfsson. (2000, 9. júní). Hverjar eru dauðasyndirnar (erfðasyndirnar) sjö? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=505

Haukur Már Helgason og Sigurjón Árni Eyjólfsson. „Hverjar eru dauðasyndirnar (erfðasyndirnar) sjö?“ Vísindavefurinn. 9. jún. 2000. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=505>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...