Sólin Sólin Rís 10:17 • sest 16:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:40 • Sest 15:54 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:12 • Síðdegis: 22:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:36 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað merkir 'nix' í orðasambandinu 'núll og nix'?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Orðasambandið núll og nix er líklega ekki gamalt í málinu. Eina dæmið í ritmálssafni Orðabókar Háskólans er úr Morgunblaðinu frá 1971. Orðasambandið var ekki tekið með í Íslenska orðabók frá 1983 en er komið inn í útgáfuna frá 2002. Merkingin er ‘alls ekki neitt’ en einnig er orðasambandið notað um atkvæðalítinn mann, til dæmis: ,,Hann er algjört núll og nix“.

Orðasambandið hefur borist hingað til lands úr dönsku þar sem sagt er nul og niks á sama hátt og í íslensku. Niks í dönsku er tekið að láni úr þýsku nichts ‘ekkert’ eða lágþýsku nichs í sömu merkingu. Í þýsku er notað bæði Null und nichts og Null und nichtig í sömu merkingu og í íslensku.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

23.5.2005

Spyrjandi

Ritstjórn

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað merkir 'nix' í orðasambandinu 'núll og nix'?“ Vísindavefurinn, 23. maí 2005, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=5013.

Guðrún Kvaran. (2005, 23. maí). Hvað merkir 'nix' í orðasambandinu 'núll og nix'? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=5013

Guðrún Kvaran. „Hvað merkir 'nix' í orðasambandinu 'núll og nix'?“ Vísindavefurinn. 23. maí. 2005. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=5013>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvað merkir 'nix' í orðasambandinu 'núll og nix'?
Orðasambandið núll og nix er líklega ekki gamalt í málinu. Eina dæmið í ritmálssafni Orðabókar Háskólans er úr Morgunblaðinu frá 1971. Orðasambandið var ekki tekið með í Íslenska orðabók frá 1983 en er komið inn í útgáfuna frá 2002. Merkingin er ‘alls ekki neitt’ en einnig er orðasambandið notað um atkvæðalítinn mann, til dæmis: ,,Hann er algjört núll og nix“.

Orðasambandið hefur borist hingað til lands úr dönsku þar sem sagt er nul og niks á sama hátt og í íslensku. Niks í dönsku er tekið að láni úr þýsku nichts ‘ekkert’ eða lágþýsku nichs í sömu merkingu. Í þýsku er notað bæði Null und nichts og Null und nichtig í sömu merkingu og í íslensku....