Sólin Sólin Rís 10:26 • sest 16:02 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:04 • Sest 15:19 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:05 • Síðdegis: 13:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 07:12 • Síðdegis: 20:04 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Úr hverju eru neglurnar?

JGÞ

Neglur eru gerðar úr dauðum frumum rétt eins og hárið á okkur. Í nöglunum eru dauðar hyrnisfrumur húðþekkjunnar þéttpakkaðar, en hyrni er prótín sem er meginuppistaðan í hári, fjöðrum fugla, hornum dýra og klóm.

Neglurnar á okkur gegna sama hlutverki og klær á öðrum dýrum, við getum til dæmis klórað okkur með þeim þar sem okkur klæjar. Auk þess vernda þær fremsta hluta finga og táa.

Neglur vaxa yfirleitt hraðar á sumrin en á veturna. Neglur karla vaxa hraðar en kvenna og á rétthentum vaxa neglur hraðar á hægri hendi en á þeirri vinstri hjá örvhentum.

Hægt er að lesa meira um neglur í svari við eftirfarandi spurningum:

Höfundur

Jón Gunnar Þorsteinsson

bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins

Útgáfudagur

26.4.2005

Spyrjandi

Margrét Loftsdóttir, f. 1992

Efnisorð

Tilvísun

JGÞ. „Úr hverju eru neglurnar?“ Vísindavefurinn, 26. apríl 2005, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=4947.

JGÞ. (2005, 26. apríl). Úr hverju eru neglurnar? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=4947

JGÞ. „Úr hverju eru neglurnar?“ Vísindavefurinn. 26. apr. 2005. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=4947>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Úr hverju eru neglurnar?
Neglur eru gerðar úr dauðum frumum rétt eins og hárið á okkur. Í nöglunum eru dauðar hyrnisfrumur húðþekkjunnar þéttpakkaðar, en hyrni er prótín sem er meginuppistaðan í hári, fjöðrum fugla, hornum dýra og klóm.

Neglurnar á okkur gegna sama hlutverki og klær á öðrum dýrum, við getum til dæmis klórað okkur með þeim þar sem okkur klæjar. Auk þess vernda þær fremsta hluta finga og táa.

Neglur vaxa yfirleitt hraðar á sumrin en á veturna. Neglur karla vaxa hraðar en kvenna og á rétthentum vaxa neglur hraðar á hægri hendi en á þeirri vinstri hjá örvhentum.

Hægt er að lesa meira um neglur í svari við eftirfarandi spurningum:...