Sólin Sólin Rís 10:17 • sest 16:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:40 • Sest 15:54 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:12 • Síðdegis: 22:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:36 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Af hverju eru skjaldbökur með skjöld?

Jón Már Halldórsson

Skjaldbökur hafa skjöld til að verjast hugsanlegum afræningjum, eða dýrum sem ætla að éta þær. Skjaldbökur eru hægfara og geta ekki hlaupið undan rándýrum og því hafa þær þróað með sér skjöld sem rándýr eiga afar erfitt með að vinna á.

Skjöldurinn er í reynd hluti af beinagrind skjaldbökunnar og samanstendur af 59-61 beini. Beinin eru þakin plötum sem á fræðimáli nefnast scutes. Þau eru fest við hrygginn og voru upprunalega rifbein. Sennilegt þykir að forfeður skjaldbökunnar hafi þróað með sér skjöld fyrir meira en 240 milljón árum.

Margar skjaldbökur geta dregið höfuð og lappir inn í skelina en aðrar tegundir aðeins lappir. Í stað þess að draga hausinn alveg inn leggja þau hann til hliðar að skildinum og þykkar húðfellingar á hálsi veita ágæta vörn gegn rándýrum.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

19.4.2005

Spyrjandi

Hulda Hlíðkvist

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Af hverju eru skjaldbökur með skjöld?“ Vísindavefurinn, 19. apríl 2005, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=4911.

Jón Már Halldórsson. (2005, 19. apríl). Af hverju eru skjaldbökur með skjöld? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=4911

Jón Már Halldórsson. „Af hverju eru skjaldbökur með skjöld?“ Vísindavefurinn. 19. apr. 2005. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=4911>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar