Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Erfitt er að segja með vissu hversu mörg orð eru til yfir djöfulinn í íslensku. Flest þeirra heita sem þekkjast hafa orðið til við það að ekki þótti við hæfi að nefna djöfulinn og því var það gert með því að nota umritanir eða gæluorð. Í Íslenskri samheitabók eru þessi talin upp undir flettiorðinu fjandi:
andskoti
ansakornið
árakornið
ári
defill
deli
défsi
déll
déskoti
dífill
djangi
djanki
djöfsi
sá fetótti
fjandakornið
fjári
freistarinn
Gamli í Niðurkoti
grefill
jónskoti
kölski
ólukki
paufi
paur
pauri
pokur
rækall
rækarl
sá í neðra
sá vondi
skolli
skrambi
skratti
skufsi
tremill
þremill
Mynd úr handriti frá 14. öld sem sýnir Lúsífer í víti Dantes. Lúsífer hefur þrjú höfuð og tyggur í sífellu þrjá erkisvikara: Júdas, Brútus og Kassíus. Hægt er smella á myndina til að sjá stærri útgáfu af henni
Undir kölski má finna fleiri heiti:
sá eineygði
flugnahöfðingi
sá gamli
sá gráskjótti
sá hrosshæfði
sá kolbíldótti
kolbíldur
ljótikallinn
myrkrahöfðingi
óvinur
satan
vomur
Undir ári má finna til viðbótar:
bölvættur
drýsildjöfull
drýsill
illdéfli
Og undir andskoti eru heitin:
ankoti
ansi
antoti
asskolli
asskoti
assvíti.
Alls eru þetta 61 ólík nöfn á djöflinum en ekki komast þó öll heiti af þessu tagi á prent og erfitt er að safna þeim saman þannig að allt sé með.
Að lokum bendum við þeim lesendum Vísindavefsins sem eru búnir að fá nóg af djöflinum eftir þessa upptalningu á að lesa svar við spurningunni Hvernig lítur Guð út? Mynd:Godphoto
Guðrún Kvaran. „Hvað eru til mörg nöfn yfir djöfulinn á íslensku og hver eru þau?“ Vísindavefurinn, 28. desember 2004, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=4685.
Guðrún Kvaran. (2004, 28. desember). Hvað eru til mörg nöfn yfir djöfulinn á íslensku og hver eru þau? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=4685
Guðrún Kvaran. „Hvað eru til mörg nöfn yfir djöfulinn á íslensku og hver eru þau?“ Vísindavefurinn. 28. des. 2004. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=4685>.