Einstein bjó í München mesta bernsku sína, með foreldrum sínum. Hann olli þeim áhyggjum því að hann var seinþroska. Sem barn átti hann erfitt um mál, var lítt gefinn fyrir leiki og leiddist í skóla. Ungur að árum gerðist Einstein svissneskur ríkisborgari, en í Sviss nam hann stærðfræði og eðlisfræði. Árið 1902 fær hann vinnu á einkaleyfaskrifstofu í Bern, þar sem hann vinnur til 1909 meðan hann leggur drög að kenningum sínum í frístundum. Árið 1911 fékk Einstein prófessorsstöðu í Prag og síðan í Zürich og Berlín. Hann starfaði innan háskóla þaðan í frá. Árið 1905 birtir Einstein þrjár merkilegar ritgerðir. Ein þeirra hét „Um rafsegulfræði hluta á hreyfingu“ en í henni setur hann fram takmörkuðu afstæðiskenninguna. 1916 birti Einstein almennu afstæðiskenninguna í nokkrum ritgerðum. 1919 er kenningin staðfest með frægri athugun, við sólmyrkva, á sveigju ljóss sem berst frá fjarlægri stjörnu, vegna þyngdarafls sólar. 1921 fékk Einstein Nóbelsverðlaun fyrir framlag sitt til eðlisfræðinnar. Einstein var af gyðingaættum og hrökklaðist frá Þýskalandi nasismans til Princeton í Bandaríkjunum árið 1933. Þar bjó hann til dauðadags. Heimild og ítarefni:
- NOVA um Einstein og hugmyndir hans.