Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Hraunhellar eru rásir sem hraunbráðin rann eftir og tæmdust síðan.
Hraun renna ýmist í tiltölulega grunnum farvegum, svokölluðum hrauntröðum, nærri yfirborði hraunsins eða bráðin rennur neðanjarðar og leitar niður í óstorknaðan hluta hraunsins og sameinast honum. Við þetta lyftist yfirborð hraunsins og það getur þykknað verulega á stóru svæði auk þess sem svonefndir „troðhólar“ myndast. Þessa sér til dæmis víða stað meðfram Keflavíkurveginum.
Surtshellir í Hallmundarhrauni í Mýrasýslu er stærsti íslenski hellirinn.
Þessi háttur, að hraunkvikan „troðist inn í“ hinn bráðna hluta hraunsins líkt og vatn í belg, er sennilega mun algengari en hinn fyrrnefndi, einkum þegar um rúmmálsmikil hraun er að ræða.
Þegar hraun rennur eftir hrauntröð myndast þegar í stað storkin skán á yfirborði þess. Þegar skánin þykknar getur hún orðið að föstu þaki yfir hraunrásinni sem helst stöðugt þótt lækki í hraunstraumnum undir. Hraunhellar eru sem sagt rennslisrásir eða „pípur“ sem hafa tæmst að meira eða minna leyti.
Mynd:Náttúruvernd ríkisins.
Sigurður Steinþórsson. „Hvernig myndast hraunhellar?“ Vísindavefurinn, 29. september 2003, sótt 22. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=3763.
Sigurður Steinþórsson. (2003, 29. september). Hvernig myndast hraunhellar? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=3763
Sigurður Steinþórsson. „Hvernig myndast hraunhellar?“ Vísindavefurinn. 29. sep. 2003. Vefsíða. 22. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=3763>.