Sólin Sólin Rís 10:26 • sest 16:02 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:04 • Sest 15:19 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:05 • Síðdegis: 13:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 07:12 • Síðdegis: 20:04 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hversu margir bjuggu á Íslandi þegar Snorri Sturluson var uppi?

Erfitt er að meta íbúafjölda á Íslandi fyrir tíma fyrsta manntalsins 1703. Það hefur þó verið reynt, til dæmis hér á Vísindavefnum í svari Gísla Gunnarssonar við spurningunni Er það satt að innan við milljón manns hafi fæðst á Íslandi frá upphafi?

Snorri Sturluson fæddist árið 1179 og lést árið 1241. Um tímabilið 1100-1300 segir Gísli í ofangreindu svari að íbúar á Íslandi hafi þá að meðaltali verið um 55.000.

Í svari Gísla kemur fram út frá hvaða forsendum þessi tala er fengin. Rétt er að taka fram að býsna ólíkar niðurstöður er hægt að fá úr óbeinum upplýsingum um mannfjölda. Gísli tekur sem dæmi árið 1097 og upplýsingar um tíundarskylda menn það ár. Með mismunandi aðferðum má fá út fólksfjöldatölu á bilinu 40.000 til 80.000 fyrir það ár.

Eina örugga svarið við spurningunni hér að ofan er því að mannfjöldi á Íslandi þegar Snorri Sturluson var upp hafi verið á bilinu 40.000 til 80.000. Hægt er teygja bæði mörkin til en sjaldan er þó talið að fleiri en 80.000 hafi búið á Íslandi á þessum tíma. Meðaltal Gísla fyrir tímabilið 1100-1300, 55.000 manns, er því góð ágiskun á fjölda Íslendinga um ævidaga Snorra Sturlusonar.

Mynd:

Höfundur

Unnar Árnason

bókmenntafræðingur

Útgáfudagur

23.9.2003

Spyrjandi

Kristbjörg Kristjánsdóttir

Tilvísun

UÁ. „Hversu margir bjuggu á Íslandi þegar Snorri Sturluson var uppi?“ Vísindavefurinn, 23. september 2003, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=3750.

UÁ. (2003, 23. september). Hversu margir bjuggu á Íslandi þegar Snorri Sturluson var uppi? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=3750

UÁ. „Hversu margir bjuggu á Íslandi þegar Snorri Sturluson var uppi?“ Vísindavefurinn. 23. sep. 2003. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=3750>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...