Sólin Sólin Rís 10:26 • sest 16:02 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:04 • Sest 15:19 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:05 • Síðdegis: 13:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 07:12 • Síðdegis: 20:04 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Er hægt að nota allar evrur í öllum ríkjum Evrópusambandsins? Líka smápeningana?

Gylfi Magnússon

Í þeim löndum sem tekið hafa upp evruna (€) eru allir evrupeningar gjaldgengir, bæði seðlar og mynt. Myntirnar eru mismunandi eftir því í hvaða landi þeim er dreift í upphafi, en þær gilda engu að síður í öllum evrulöndum.

***

Evruseðlarnir eru allir eins og eru til seðlar með verðgildi frá 5 evrum upp í 500 evrur. Austuríkismaðurinn Robert Kalina teiknaði þá alla.

Myntirnar eru hins vegar mismunandi, eftir því í hvaða landi þeim er dreift upprunalega. Önnur hliðin er þó eins á myntum sömu upphæðar í öllum löndunum en hin hliðin er breytileg og teiknuð af listamönnum í útgáfulandinu. Evrumyntir eru slegnar með verðgildi frá einu evrusenti (0,01 €) til tveggja evra.

Efst má sjá þá hlið á 2 evru mynt sem er sameiginleg en fyrir neðan má sjá hina hliðina sem er breytileg. Hægt er að smella á myndina til að sjá hana stærri.

Þegar þetta er skrifað, í júní 2011, hafa 17 af 27 ríkjum Evrópusambandsins tekið upp evrur en Danir og Svíar halda enn í krónurnar sínar og Bretar í pundin. Löndin sem gefa út evrur eru því Finnland, Írland, Holland, Belgía, Lúxemborg, Frakkland, Þýskaland, Austurríki, Spánn, Portúgal, Ítalía, Grikkland, Slóvenía, Kýpur, Malta, Slóvakía, og Eistland. Auk þess nota ýmis smáríki evrur, svo sem San Marínó, Mónakó, Andorra og Vatíkanið.

Í Danmörku, Svíþjóð og Bretlandi er hægt að greiða fyrir vöru og þjónustu í evrum ef söluaðili er því samþykkur. Danski seðlabankinn lætur einnig gengi dönsku krónunnar fylgja gengi evrunnar náið eftir. Mörg fyrirtæki í þessum löndum, sérstaklega tengd ferðaiðnaði, taka við evrum til að standa sig í samkeppninni um ferðamenn. Verðmerkingar bæði í heimagjaldmiðlum og evru auðvelda einnig verðútreikning fyrir ferðamenn frá evrusvæðinu.

Mynd:

Sótt 29.4.2011 á Wikipedia - Euro.

Höfundur

Gylfi Magnússon

prófessor í hagfræði við HÍ

Útgáfudagur

24.6.2003

Spyrjandi

Guðný Kemp

Tilvísun

Gylfi Magnússon. „Er hægt að nota allar evrur í öllum ríkjum Evrópusambandsins? Líka smápeningana?“ Vísindavefurinn, 24. júní 2003, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=3524.

Gylfi Magnússon. (2003, 24. júní). Er hægt að nota allar evrur í öllum ríkjum Evrópusambandsins? Líka smápeningana? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=3524

Gylfi Magnússon. „Er hægt að nota allar evrur í öllum ríkjum Evrópusambandsins? Líka smápeningana?“ Vísindavefurinn. 24. jún. 2003. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=3524>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Er hægt að nota allar evrur í öllum ríkjum Evrópusambandsins? Líka smápeningana?
Í þeim löndum sem tekið hafa upp evruna (€) eru allir evrupeningar gjaldgengir, bæði seðlar og mynt. Myntirnar eru mismunandi eftir því í hvaða landi þeim er dreift í upphafi, en þær gilda engu að síður í öllum evrulöndum.

***

Evruseðlarnir eru allir eins og eru til seðlar með verðgildi frá 5 evrum upp í 500 evrur. Austuríkismaðurinn Robert Kalina teiknaði þá alla.

Myntirnar eru hins vegar mismunandi, eftir því í hvaða landi þeim er dreift upprunalega. Önnur hliðin er þó eins á myntum sömu upphæðar í öllum löndunum en hin hliðin er breytileg og teiknuð af listamönnum í útgáfulandinu. Evrumyntir eru slegnar með verðgildi frá einu evrusenti (0,01 €) til tveggja evra.

Efst má sjá þá hlið á 2 evru mynt sem er sameiginleg en fyrir neðan má sjá hina hliðina sem er breytileg. Hægt er að smella á myndina til að sjá hana stærri.

Þegar þetta er skrifað, í júní 2011, hafa 17 af 27 ríkjum Evrópusambandsins tekið upp evrur en Danir og Svíar halda enn í krónurnar sínar og Bretar í pundin. Löndin sem gefa út evrur eru því Finnland, Írland, Holland, Belgía, Lúxemborg, Frakkland, Þýskaland, Austurríki, Spánn, Portúgal, Ítalía, Grikkland, Slóvenía, Kýpur, Malta, Slóvakía, og Eistland. Auk þess nota ýmis smáríki evrur, svo sem San Marínó, Mónakó, Andorra og Vatíkanið.

Í Danmörku, Svíþjóð og Bretlandi er hægt að greiða fyrir vöru og þjónustu í evrum ef söluaðili er því samþykkur. Danski seðlabankinn lætur einnig gengi dönsku krónunnar fylgja gengi evrunnar náið eftir. Mörg fyrirtæki í þessum löndum, sérstaklega tengd ferðaiðnaði, taka við evrum til að standa sig í samkeppninni um ferðamenn. Verðmerkingar bæði í heimagjaldmiðlum og evru auðvelda einnig verðútreikning fyrir ferðamenn frá evrusvæðinu.

Mynd:

Sótt 29.4.2011 á Wikipedia - Euro....