2. Ef menntun merkir lærdóm af því tagi sem miðlað er í skólum þá má skilja orðið fullmenntaður svo að maður sé fullmenntaður í einhverri grein þegar hann hefur lært hana til hlítar, þannig að ekki sé hægt að læra meira í henni. Nær allar greinar lista, tækni, vísinda og fræða eru umfangsmeiri en svo að einn maður geti numið þær til hlítar. Þekking á flestum sviðum þróast líka og vex svo jafnvel þótt einhver kynni skil á allri speki sem nú er til á einhverju sviði væri hann ekki endilega fullnuma í þeim skilningi að hann gæti ekki bætt við þekkingu sína. Hann gæti gert það með því að afla sjálfur nýrrar þekkingar eða fylgjast með nýjum hugmyndum annarra sérfræðinga í greininni. 3. Orðið menntun er ekki aðeins notað um lærdóm á tilteknum sviðum eða nám í einhverjum námsgreinum, heldur líka um ýmsa mannkosti eins og smekkvísi, hagleik, víðsýni, yfirsýn yfir margar fræðigreinar og ratvísi um heim vísinda, tækni, félagsmála og menningar. Það er afar ólíklegt að nokkur maður nái fullkomnun í öllu þessu og verði "fullmenntaður" í þeim skilningi að hann geti ekki þroskað þessa mannkosti enn meir. Mér þykir ólíklegt að menn viðhaldi þeim kostum sem hér voru nefndir öðru vísi en með sífelldu námi og stöðugri leit. Ég held því að það vanti eitthvað á að sá maður sé fullmenntaður sem telur sig vera það og er af þeim sökum hættur að reyna að auka vit sitt og þroska. Mynd: Vanderbilt University. Sótt 30. 10. 2008.