Sólin Sólin Rís 10:17 • sest 16:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:40 • Sest 15:54 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:12 • Síðdegis: 22:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:36 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er Grikkland stórt og hvað búa margir þar?

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

Grikkland nær yfir syðsta hluta Balkanskaga og á landamæri í norðri að Albaníu, Makedóníu, Búlgaríu og Tyrklandi. Eitt af einkennum Grikklands er nálægð við sjóinn, en haf umlykur landið á þrjá vegu. Í austri liggur Grikkland að Eyjahafi, að Miðjarðarhafi í suðri og Jónahafi í vestri. Hvergi á Grikklandi eru meira en 100 km að sjó.

Annað einkenni Grikklands er hversu fjalllent það er en einungis um fjórðungur landsins telst til undirlendis. Hæsta fjall Grikklands er hið fræga Ólymposfjall en hæsti tindur þess er 2.917 km hár.

Flatarmál Grikklands er alls um 131.940 km2 og er það því um þriðjungi stærra en Ísland. Meira en 2000 eyjar tilheyra Grikklandi og er flatarmál þeirra um 18% af heildarflatarmáli landsins. Um 170 þessara eyja eru í byggð.

Íbúar Grikklands voru tæplega 10.940.000 árið 2001. Höfðuborg Grikklands er Aþena sem jafnframt er stærsta borg landsins. Um þriðjungur Grikkja býr á höfuðborgarsvæðinu eða næsta nágrenni þess, en um 757.000 manns búa í Aþenu sjálfri.

Heimild:

Britannica Online

Mynd: HB

Höfundur

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

2.8.2002

Spyrjandi

Helena Jóhannsdóttir, f. 1988

Tilvísun

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvað er Grikkland stórt og hvað búa margir þar?“ Vísindavefurinn, 2. ágúst 2002, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=2625.

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. (2002, 2. ágúst). Hvað er Grikkland stórt og hvað búa margir þar? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=2625

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvað er Grikkland stórt og hvað búa margir þar?“ Vísindavefurinn. 2. ágú. 2002. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=2625>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd: HB...