Er nokkur fastastjarna, sem hefur möguleika á að verða sprengistjarna svo nálægt okkur að slík sprenging myndi hafa áhrif sólkerfi okkar?Hér er einnig svarað eftirfarandi spurningum:
Sprengistjörnur (e. supernova) eru meðal mestu hamfara sem þekkjast í alheiminum. Orkan sem losnar úr læðingi þegar stjarna springur er hrikaleg og sést það best á því að við sprenginguna verður stjarnan jafn björt eða bjartari en heil vetrarbraut. Í Vetrarbrautinni okkar eru nokkrar stjörnur sem vitað er að munu enda líf sitt í slíkum hamförum. Sem betur fer er engin fastastjarna svo nálægt okkur að ef hún springi myndi hún hafa mikil áhrif á sólkerfið. Við erum líklega óhult ef engin stjarna springur í 10 til 50 ljósára fjarlægð, en ef aðrir byggju við slíka stjörnu hefði það auðvitað hræðilegar afleiðingar. Þegar menn líta til nánustu framtíðar, 100.000 þúsund eða milljón ár, koma að minnsta kosti tvær stjörnur sérstaklega til greina. Þetta eru þær Eta Carina í Kilinum og Betelgás í Óríon. Ef nefna á einhverjar fleiri stjörnur koma til dæmis Antares í Sporðdrekamerkinu og stjarnan IRC+10216 einnig til greina. Stjarna IRC+10216 er mjög gömul og er mesta uppspretta innrauðs ljóss á næturhimninum. Hún sést ekki lengur með berum augum þar sem hún hefur framleitt svo mikið ryk í miklum sólgosum að ljósið nær ekki að skína í gegn.
- Er það satt sem ég var að heyra um sólstjörnuna Betelgás í stjörnumerkinu Óríon að hún springi eftir 10-12 ár? (Daníel Valsson)
- Hvenær á Betelgás að springa eða getur verið að hún sé þegar sprungin? (Katrín)

Stjarnan Eta Carina, sem sést hér að ofan, er sem betur fer í 8000 ljósára fjarlægð frá okkur. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu fjarlægð varð hún engu að síður önnur bjartasta stjarna himinsins um tíma í apríl árið 1843. Ástæðan fyrir því var sú að stjarnan hafði kastað af sér gríðarlega miklu efni, eins og hún hafði raunar gert nokkrum sinnum áður, og myndað þetta gríðarlega stundaglaslaga ský sem sjá má á myndinni. Þessi stjarna er 100 sinnum massameiri en sólin okkar og árið 1843 hafði hún sex milljón sinnum meira ljósafl. Stjarnan er mjög óstöðug en hún virðist vera á síðustu stundum lífs síns og mun líkast til springa á næstu hundrað þúsund árum.


Það getur líka vel verið að Betelgás sé þegar sprungin og þá er auðvitað aðeins tímaspursmál hvenær það kemur í ljós. Líklegra er þó að hún sé ekki sprungin og árin sem við þurfum að bíða eftir því eru ef til vill nokkur milljón til viðbótar. Síðast varð vart við sprengistjörnu, sem sást með berum augum, hinn 23. febrúar árið 1987, þegar stjarna sprakk í Stóra-Magellanskýinu. Hún sést á myndinni hér að ofan. Við höfum hins vegar ekki orðið vör við sprengistjörnu í Vetrarbrautinni okkar í meira en 400 ár sem þykir óvenju langur tími sé miðað við það að stjarna springi á 50 ára fresti í Vetrarbrautinni okkar. Til gamans má geta að efni úr sprengistjörnum myndar stjörnuþokur sem síðan mynda margar stjörnur. Við erum því í raun afleiðing sprengistjörnu, eða eins og bandaríski stjörnufræðingurinn Carl Sagan orðaði það: "Við erum öll úr stjörnuefni". Myndir:
- Myndin af Betelgás.
- Myndin af Eta Carina.
- Myndin af SN 1987A.
- Freedman, R. A. og Kaufmann, William. Universe. W. H. Freedman and Company, New York, 1998. 5. útgáfa.
- Moore, Patrick. Atlas of the Universe. Cambrigde University Press, Cambridge, 1998.
- Ridpath, Ian. A Dictionary of Astronomy. Oxford Paperback Reference, Oxford University Press, New York, 1997.
- Sagan, Carl. Cosmos. Random House, New York, 1983.