- Macau með 21 606 íbúa á hvern ferkílómetra
- Mónakó með 16 329 íbúa á hvern ferkílómetra
- Singapúr með 6641 íbúa á hvern ferkílómetra
- Hong Kong með 6603 íbúa á hvern ferkílómetra
- Gíbraltar með 4254 íbúa á hvern ferkílómetra
Myndin hér að ofan sýnir hluta af Macau. Macau var lengi vel portugölsk nýlenda. Landið liggur á suðurströnd Kína rétt vestur af Hong Kong. Macau varð kínverskt sjálfstjórnarsvæði árið 1999. Landið er 21 ferkílómetri að stærð (rúmlega tvisvar sinnum stærri en Reykjavík) en íbúar eru 453.700. Langflestir íbúa eða um 95% eru Kínverjar þó margir Portúgalar búi þar einnig. Mikill fólksflótti varð frá Kína til Macau þegar kommúnistar tóku við völdum í Kína um miðja tuttugustu öld. Kínverjar flýðu þá þúsundum saman frá landinu og skýrir það hvers vegna Macau er eins þéttbýlt og raun ber vitni. Á meðal helstu atvinnugreina eru verslun, fiskveiðar, vefnaðariðnaður og ferðaþjónusta. Þess má svo geta að Ísland er á meðal strjálbýlustu landa í heimi en hér eru um 2,7 íbúar á hvern ferkílómetra. Heimildir:
CIA World Factbook
Encyclopedia.com
Myndin er frá vefsetrinu shunya.net