Samrýmist það vísindalegri hugsun að lífverur, og þar á meðal hinn vitiborni maður, hafi þróast úr dauðum jarðefnum án þess að nokkur sköpunarmáttur hafi verið þar að verki?Þetta samræmist einmitt vísindalegri hugsun. Um leið og við færum að gera ráð fyrir því að sérstakur utanaðkomandi sköpunarkraftur ætti hlut að máli værum við komin út fyrir mörk vísindanna nema því aðeins að þessi sköpunarkraftur beitti aðferðum sem féllu að hugmyndum vísindanna. Hitt er annað mál að enn vantar mikið á að vísindamönnum hafi tekist að skýra til fulls tilurð lífs úr "dauðum jarðefnum", samanber svör við spurningum um það efni hér á Vísindavefnum. Skýringar vísindanna á "viti" mannsins eru líka, enn sem komið er, fremur bágbornar. Að mati flestra vísindamanna liggur þó beinast við að leita strangvísindalegra svara við þessum ráðgátum. Þróunarsaga lífsins á jörðinni, hinn gífurlegi fjölbreytileiki lífvera og hæfileiki þeirra til að laga sig að ólíklegustu aðstæðum, --- allt vitnar þetta um firnamikinn sköpunarkraft sem fólginn er í lífinu sjálfu. Lífið getur ekki annað en breyst og þróast. Hins vegar virðist tilhneiging til þróunar svokallaðra vitsmunavera ekki vera mjög mikil. Aðeins ein af tugum milljóna tegunda sem fram hafa komið á jörðinni hefur, að því er hún sjálf telur, komist eitthvað áleiðis á þeirri braut. Að minnsta kosti það langt að hún leitar svara við spurningum eins og þeirri sem hér var spurt. Sjá einnig svör við öðrum spurningum um upphaf lífs: Hvenær kviknaði líf á jörðinni og hvers vegna? eftir Guðmund Eggertsson og Hver var fyrsta lífveran á jörðinni? eftir Einar Árnason.
Samrýmist það vísindalegri hugsun að lífverur hafi þróast úr dauðum efnum án sköpunar?
Útgáfudagur
13.3.2000
Spyrjandi
Sveinn Víkingur Þórarinsson
Tilvísun
Guðmundur Eggertsson. „Samrýmist það vísindalegri hugsun að lífverur hafi þróast úr dauðum efnum án sköpunar?“ Vísindavefurinn, 13. mars 2000, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=230.
Guðmundur Eggertsson. (2000, 13. mars). Samrýmist það vísindalegri hugsun að lífverur hafi þróast úr dauðum efnum án sköpunar? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=230
Guðmundur Eggertsson. „Samrýmist það vísindalegri hugsun að lífverur hafi þróast úr dauðum efnum án sköpunar?“ Vísindavefurinn. 13. mar. 2000. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=230>.