It will get on all your disks It will infiltrate your chips Yes it's Cloner! It will stick to you like glue It will modify ram too Send in the Cloner!Höfundur þessarar veiru, Rich Skrenta, skrifaði hana þegar hann var aðeins í 9. bekk. Hann segist ekki hafa gert veiruna til að skaða neinn, heldur bara til að leika listir sínar. Fyrstu veiruna fyrir IBM samhæfðar tölvur (PC-tölvur) gerðu tveir bræður árið 1987. Þeir áttu tölvuverslun í Pakistan og bjuggu að gamni sínu til veiru að nafni Brain. Hún var frekar meinlaus miðað við það sem þekkist í dag. En það sem hún gerði var að breyta nafninu á harða disknum. Hún breiddist hratt út og bráðlega fóru menn að búa til aðrar svipaðar veirur. Fólk tók ekki eftir flestum þeirra vegna þess hversu lítil áhrif þeir höfðu. Margir kannast við veiruna Melissa en hún var ein skæðasta veira sem kom fram árið 1999. Höfundur hans er David L. Smith. Þessi veira var ein sú fyrsta sem notaði netfangaskrá til að dreifa sér. Síðan þá hafa margir veiruhöfundar notað svipaða tækni. David L. Smith var fundinn sekur í desember árið 1999 fyrir að hafa valdið 80 milljóna dollara tjóni, en það jafngildir 8 milljörðum króna. Samt sem áður hefur Smith ekki hlotið refsingu. Ein af skæðustu tölvuveirunum sem hafa verið gerðar er veiran eða ormurinn Nimda. Hann notfærir sér netfangaskrá notenda til að dreifa sér. Nafnið Nimda er einfaldlega enska orðið „admin”, skrifað afturábak, en admin þýðir vefstjóri. Eftir Nimda hafa svo komið verri pestir: Klez, Sobig, Msblast, Sober, Mydoom, Netsky, Bagle, Sasser, Zafi, Mytob, Zotob og Mitglieder, svo að nokkrar veirufjölskyldur úr endalausu flóði séu nefndar.
www.symantec.com
www.sophos.com
www.mindspring.com Myndin er fengin af vefsetrinu www.ebonet.net