1. Frásagnir einstaklingsins af minnisgloppum og tímabilum sem hann getur ekki gert grein fyrir. 2. Hann kannast ekki við sögur af eigin gerðum og atvikum. 3. Frásagnir áreiðanlegra fjölskyldumeðlima eða annarra nátengdra sem herma að um breytingu á honum sé að ræða og að hann nefni sjálfan sig með öðru nafni. 4. Hægt er að ná til aðkomupersónuleikanna með dáleiðslu. 5. Hann vísar til sín í fleirtölu, segir "við" í staðinn fyrir "ég". 6. Hann er sífellt að finna teikningar, skilaboð, bréf og hluti í fórum sínum sem hann kannast ekkert við. 7. Sjúkdómssaga þrálátra og alvarlegra höfuðverkja sem eru undanfari djúps svefns, minnisleysis, krampafloga, drauma eða sýna. 8. Hann heyrir raddir sem honum finnst vera inni í höfðinu á sér en koma ekki utan frá.Þess ber að geta að engin þessara vísbendinga ein og sér gefur tilefni til að draga þá ályktun að um margfaldan persónuleika sé að ræða. Orsakir og sálfræðilegur skilningur Orsakir margfalds persónuleika er fyrst og fremst að finna í lífsreynslu einstaklingsins í frumbernsku. Líkamlegar og andlegar pyntingar, kynferðislegt ofbeldi, vanræksla, langvarandi fjarvistir foreldra, geðveiki foreldra og öfgafullt trúaruppeldi eru nokkrir af helstu orsakavöldunum. Sökum ósjálfstæðis síns, smæðar og þroskaleysis hefur barnið engin tök á að verja sig á fullnægjandi hátt gegn óbærilegum andlegum og líkamlegum þjáningum sem það þarf að sæta. Það grípur því til frumstæðasta varnarviðbragðs sem maðurinn þekkir, það er flóttans. En þar sem ungt barn getur ekki flúið umhverfi sitt og kringumstæður verður flóttinn huglægur. Hann felst í því að það aðskilja sig frá hinum sársaukafullu kringumstæðum með því að skapa ómeðvitað einn eða fleiri persónuleika. Þeim er ætlað að taka á sig þjáningu barnsins eða hjálpa því til að afbera hana og bregðast við henni. Hver persónuleiki verður þannig andsvar við þjáningarfullri reynslu. Ákveðnir einstaklingar eru líklegri en aðrir til að mynda margfaldan persónuleika. Upprunalegi persónuleikinn er venjulega feiminn og innhverfur og á erfitt með að höndla sterkar tilfinningar, svo sem reiði og síðar á ævinni kynferðislegar ástríður. Hann er oft hjálparvana og úrræðalaus gagnvart valdamiklum aðilum. Ennfremur er hann ábyrgur og kröfuharður við sjálfan sig. Aðkomupersónuleikarnir eru hins vegar iðulega kærulausir, vanþroska, baldnir og óprúttnir, auk þess sem þeir eru oft kynferðislega (of)virkir og haldnir áfengisáráttu. Meðferð við margföldum persónuleika Meðferð við margföldum persónuleika krefst mikillar þolinmæði, sérþekkingar og hæfni þeirra sem hana stunda. Talið er að batahorfur séu góðar að þessum skilyrðum uppfylltum. Meðferð tekur oft frá tveimur og upp í fimm ár. Dáleiðslu er yfirleitt beitt, sérstaklega í upphafi meðferðarinnar þegar verið er að komast í samband við hina mismunandi persónuleika og leita orsaka fyrir myndun þeirra. Einstaklingar með margfaldan persónuleika geta ekki lifað eðlilegu lífi sökum hinnar alvarlegu minnisbrenglunar sem einkennir þá. Mikill kvíði og öryggisleysi fylgir í kjölfar vitneskjunnar um að lengri og skemmri tímabil í ævi manns séu manni hulin. En sökum þess að hægt er að lækna margfaldan persónuleika skiptir rétt greining sköpum. Þetta svar er birt með góðfúslegu leyfi frá vefsetrinu persona.is Frekara lesefni á Vísindavefnum
- Af hverju nota sálfræðingar svartar klessumyndir og spyrja sjúklingana út í þær? eftir Heiðu Maríu Sigurðardóttur.
- Getur persónuleiki fólks gerbreyst? eftir Jakob Smára.
- Hvað er jaðarpersónuleikaröskun? Er hægt að ráða bót á henni? eftir Jakob Smára.
- Hvað er persónuleikaröskun? eftir Jakob Smára.
- Hvað er rofinn persónuleiki? eftir Jakob Smára.
Mynd: Af veggspjaldi kvikmyndarinnar The Three Faces of Eve