REM-stig svefns kemur fyrir með reglulegu millibili á um 90 mínúta fresti á næturnar og stendur mislengi, allt frá nokkrum mínútum upp í hálftíma. Þessi draumskeið eru styst í byrjun nætur en lengjast er líður á nóttina. Ef fólk er vakið eftir lok slíks draumskeiðs getur það venjulega rifjað upp söguþráð draums. Sýnt hefur verið fram á að lengd draums er háð lengd draumsvefnsskeiðs. Það hvernig fólk vaknar virðist hafa afgerandi áhrif á varðveislu og upplifun draumsins í vökuástandi. Draumar eru hluti tilverunnar sem er okkur flestum að verulegu leyti hulinn. Þrátt fyrir að menn hafi lengi velt fyrir sér eðli og uppruna drauma er fátt vitað með vissu um þetta efni. Lítið er vitað um tilgang drauma. Líklegt er þó að vöðvaslökunin í draumsvefni þjóni hvíldarhlutverki, en þegar draumarnir verða að martröðum er hvíldin eflaust ekki eins góð og ella. Martraðir eru langir draumar, þar sem fólk er hrætt og vaknar upp óttaslegið. Sumir fá mjög oft martraðir en aðrir aðeins einstaka sinnum, helst ef þeir eru þreyttir, undir álagi eða veikir. Um 50% fullorðinna segjast fá martraðir við og við. Yfirleitt er ekki þörf neinnar sérstakrar meðferðar við martröðum. Lyf sem draga úr draumsvefni, það er að segja REM-svefni, geta stundum komið í veg fyrir martraðir. Þetta eru eldri þunglyndislyf, svokölluð þriggjahringa lyf og MAO-lyf. Einnig geta lyf eins og Diazepam haft sambærilega verkun. Þetta svar er birt með góðfúslegu leyfi vefsetursins persona.is. Nokkur fleiri svör um svefn og drauma: Eftir Magnús Jóhannsson: Hvers vegna gnístir fólk tönnum í svefni? Hvað er kæfisvefn og hvað er hægt að gera í þeim efnum? Breytist svefnþörf með aldri fólks? Eftir Valtý Stefánsson Thors: Af hverju kippist fólk oft við þegar það er að sofna? Eftir Jón Gunnar Þorsteinsson: Hvaða gildi hafa dagdraumar?
Mynd: The Detroit Institute of Arts