Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Orðið hjarta er hvorugkynsorð sem beygist eftir veikri beygingu á eftirfarandi hátt með og án greinis:
Eintala
Fleirtala
án greinis
með greini
án greinis
með greini
nf.
hjarta
hjartað
hjörtu
hjörtun
þf.
hjarta
hjartað
hjörtu
hjörtun
þgf.
hjarta
hjartanu
hjörtum
hjörtunum
ef.
hjarta
hjartans
hjartna
hjartnanna
Fá hvorugkynsorð beygjast eftir veikri beygingu. Þau eru auga, bjúga, eista, eyra, hnoða, lunga, milta, nýra og tökuorðin firma og þema. Þau eru öll algeng í nútímamáli nema helst hnoða 'hnykill'. Þau fá endinguna -na í eignarfalli fleirtölu nema hnoða, firma og þema.
Guðrún Kvaran. „Hvernig beygist orðið hjarta án greinis og með honum, í eintölu og fleirtölu?“ Vísindavefurinn, 5. mars 2002, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=2153.
Guðrún Kvaran. (2002, 5. mars). Hvernig beygist orðið hjarta án greinis og með honum, í eintölu og fleirtölu? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=2153
Guðrún Kvaran. „Hvernig beygist orðið hjarta án greinis og með honum, í eintölu og fleirtölu?“ Vísindavefurinn. 5. mar. 2002. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=2153>.