Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Þessu er í rauninni best svarað með myndinni hér á eftir. Hún sýnir að hæð spegilsins þarf að vera að minnsta kosti helmingur af hæð mannsins. Ef spegillinn hefur nákvæmlega þá hæð þarf hins vegar einnig að stilla vandlega hversu hátt á veggnum spegillinn er. Með því að skoða myndina vel sést að hæð efri brúnar þarf að vera miðja vegu milli augnhæðar og efsta punkts á manninum. Hæð neðri brúnar þarf á sama hátt að vera miðja vegu milli gólfsins (fótanna á manninum) og augnanna.
Þorsteinn Vilhjálmsson. „Hve stór þarf spegill að vera til að maður sjái sig allan í honum og hvernig yrði geislagangurinn?“ Vísindavefurinn, 19. febrúar 2002, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=2123.
Þorsteinn Vilhjálmsson. (2002, 19. febrúar). Hve stór þarf spegill að vera til að maður sjái sig allan í honum og hvernig yrði geislagangurinn? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=2123
Þorsteinn Vilhjálmsson. „Hve stór þarf spegill að vera til að maður sjái sig allan í honum og hvernig yrði geislagangurinn?“ Vísindavefurinn. 19. feb. 2002. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=2123>.