Sólin Sólin Rís 10:26 • sest 16:02 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:04 • Sest 15:19 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:05 • Síðdegis: 13:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 07:12 • Síðdegis: 20:04 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað eru margar kindur á Íslandi?

Jón Már Halldórsson

Menn vita yfirleitt ekki nákvæmlega hversu margar kindur eru á landinu eða á tilteknum svæðum á sumrin. Fjöldinn breytist um sauðburðinn með hverju nýju lambi og síðan með náttúrulegum afföllum. Þess vegna er siður að miða tölur um sauðfé við það hversu margar ær eru settar á á haustin en af því ræðst til dæmis stærð fjárhúsa. Þegar sagt er til dæmis að tiltekinn bóndi eigi 200 fjár er átt við að hann hafi 200 ær á húsi yfir veturinn.

Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands fyrir árið 2000 voru alls 465.777 kindur á Íslandi. En ef rýnt er í tölur síðastliðinna 30 ára má sjá að sauðfé hefur farið mjög fækkandi á þeim tíma. Á umræddu tímabili var sauðfé flest á árinu 1978 eða rúmlega 891 þúsund ær en hefur síðan farið fækkandi eins á sjá má á eftirfarandi stöplariti.

Heimild: Hagstofa Íslands.

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

9.12.2001

Spyrjandi

Hrefna Helgadóttir, fædd 1989

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvað eru margar kindur á Íslandi?“ Vísindavefurinn, 9. desember 2001, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=2000.

Jón Már Halldórsson. (2001, 9. desember). Hvað eru margar kindur á Íslandi? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=2000

Jón Már Halldórsson. „Hvað eru margar kindur á Íslandi?“ Vísindavefurinn. 9. des. 2001. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=2000>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...