Sólin Sólin Rís 10:17 • sest 16:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:40 • Sest 15:54 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:12 • Síðdegis: 22:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:36 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvenær og hvernig myndaðist Mælifell á Snæfellsnesi?

Sigurður Steinþórsson

Mælifell mun vera svokallaður líparítgúll, myndaður í eldgosi seint á ísöld. Bergkvikan var svo seig að hún hlóðst upp yfir gosopinu en rann ekki í burtu sem hraun. Mælifell er samsett úr tveimur kvikugerðum, ljósari og dekkri. Ljósari gerðin myndar meginhluta fjallsins, og í henni eru flygsur af hinni dekkri, en dökka gerðin myndar eins konar gígfyllingu í hvirfli fjallsins.

Greinilegt er að Mælifell „situr ofan á gömlu landslagi", því að berggrunnurinn undir því er miklu eldri og rofinn af jöklum. Hefði fjallið hins vegar myndast eftir ísöld hefði efni úr því vafalaust dreifst yfir umhverfið, auk þess sem sjá má að fjallið er ekki ósnortið af jöklum.

Mynd: Úr jarðfræðiverkefni eftir nemendur við Fjölbrautaskóla Vesturlands.

Höfundur

Sigurður Steinþórsson

prófessor emeritus

Útgáfudagur

28.8.2001

Spyrjandi

Ólöf Rist

Tilvísun

Sigurður Steinþórsson. „Hvenær og hvernig myndaðist Mælifell á Snæfellsnesi?“ Vísindavefurinn, 28. ágúst 2001, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=1849.

Sigurður Steinþórsson. (2001, 28. ágúst). Hvenær og hvernig myndaðist Mælifell á Snæfellsnesi? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1849

Sigurður Steinþórsson. „Hvenær og hvernig myndaðist Mælifell á Snæfellsnesi?“ Vísindavefurinn. 28. ágú. 2001. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1849>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvenær og hvernig myndaðist Mælifell á Snæfellsnesi?

Mælifell mun vera svokallaður líparítgúll, myndaður í eldgosi seint á ísöld. Bergkvikan var svo seig að hún hlóðst upp yfir gosopinu en rann ekki í burtu sem hraun. Mælifell er samsett úr tveimur kvikugerðum, ljósari og dekkri. Ljósari gerðin myndar meginhluta fjallsins, og í henni eru flygsur af hinni dekkri, en dökka gerðin myndar eins konar gígfyllingu í hvirfli fjallsins.

Greinilegt er að Mælifell „situr ofan á gömlu landslagi", því að berggrunnurinn undir því er miklu eldri og rofinn af jöklum. Hefði fjallið hins vegar myndast eftir ísöld hefði efni úr því vafalaust dreifst yfir umhverfið, auk þess sem sjá má að fjallið er ekki ósnortið af jöklum.

Mynd: Úr jarðfræðiverkefni eftir nemendur við Fjölbrautaskóla Vesturlands....