Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Mælir sá sem vísað er til í orðasambandinu er að öllum líkindum kornmælir, samanber orðatiltækið kornið/dropinn fyllir mælinn. Líkingin er þá sótt til þess er verið var að mæla korn með ákveðinni stærð af mæli (þ.e. mæliíláti eða mælikeri, samanber mæliglas og desílítramál). Þegar mælirinn var fullur komst ekki meira í hann. Síðan er farið að nota sambandið í yfirfærðri merkingu um að nú sé nóg komið, nóg að gert.
Guðrún Kvaran. „Þegar við segjum „nú er mælirinn fullur”, hvaða mæli er þá átt við?“ Vísindavefurinn, 6. júlí 2001, sótt 22. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=1772.
Guðrún Kvaran. (2001, 6. júlí). Þegar við segjum „nú er mælirinn fullur”, hvaða mæli er þá átt við? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1772
Guðrún Kvaran. „Þegar við segjum „nú er mælirinn fullur”, hvaða mæli er þá átt við?“ Vísindavefurinn. 6. júl. 2001. Vefsíða. 22. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1772>.