Sólin Sólin Rís 10:54 • sest 15:41 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:02 • Síðdegis: 20:23 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:45 • Síðdegis: 14:25 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hverjir eru lögbundnir frídagar okkar Íslendinga?

EMB

Lögboðnir frídagar á Íslandi, samkvæmt lögum um 40 stunda vinnuviku nr. 88/1971, eru „helgidagar þjóðkirkjunnar, sumardagurinn fyrsti, 1. maí og 17. júní, enn fremur aðfangadagur jóla og gamlársdagur frá kl. 13”. Helgidagar þjóðkirkjunnar eru taldir upp í lögum nr. 32/1997 um helgidagafrið og er þeim þar skipt í þrjá flokka eftir því hvaða starfsemi er leyfð.

Auk „venjulegra” sunnudaga eru því lögboðnir frídagar þessir:
  • 1. janúar
  • skírdagur
  • föstudagurinn langi
  • páskadagur
  • annar í páskum
  • sumardagurinn fyrsti
  • 1. maí
  • uppstigningardagur
  • hvítasunnudagur
  • annar í hvítasunnu
  • 17. júní
  • frídagur verslunarmanna
  • 24. desember frá kl. 13
  • 25. desember
  • 26. desember
  • 31. desember frá kl. 13
Enn fremur er kveðið á um að víkja megi frá lögum nr. 88/1971 með samningum séu þeir staðfestir af hlutaðeigandi heildarsamtökum.

Fjöldi frídaga á hverju ári er nokkuð breytilegur af því að sumir þessara daga falla stundum á laugardaga eða sunnudaga. Við talningu þarf einnig að taka tillit til þess að páskadagur og hvítasunnudagur falla alltaf á sunnudag, sem er því í sjálfu sér frídagur hvort sem er.

Höfundur

Eyja Margrét Brynjarsdóttir

prófessor í heimspeki og hagnýtri siðfræði

Útgáfudagur

12.6.2001

Spyrjandi

Ragnar Sævarsson

Efnisorð

Tilvísun

EMB. „Hverjir eru lögbundnir frídagar okkar Íslendinga?“ Vísindavefurinn, 12. júní 2001, sótt 4. desember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=1692.

EMB. (2001, 12. júní). Hverjir eru lögbundnir frídagar okkar Íslendinga? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1692

EMB. „Hverjir eru lögbundnir frídagar okkar Íslendinga?“ Vísindavefurinn. 12. jún. 2001. Vefsíða. 4. des. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1692>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hverjir eru lögbundnir frídagar okkar Íslendinga?
Lögboðnir frídagar á Íslandi, samkvæmt lögum um 40 stunda vinnuviku nr. 88/1971, eru „helgidagar þjóðkirkjunnar, sumardagurinn fyrsti, 1. maí og 17. júní, enn fremur aðfangadagur jóla og gamlársdagur frá kl. 13”. Helgidagar þjóðkirkjunnar eru taldir upp í lögum nr. 32/1997 um helgidagafrið og er þeim þar skipt í þrjá flokka eftir því hvaða starfsemi er leyfð.

Auk „venjulegra” sunnudaga eru því lögboðnir frídagar þessir:
  • 1. janúar
  • skírdagur
  • föstudagurinn langi
  • páskadagur
  • annar í páskum
  • sumardagurinn fyrsti
  • 1. maí
  • uppstigningardagur
  • hvítasunnudagur
  • annar í hvítasunnu
  • 17. júní
  • frídagur verslunarmanna
  • 24. desember frá kl. 13
  • 25. desember
  • 26. desember
  • 31. desember frá kl. 13
Enn fremur er kveðið á um að víkja megi frá lögum nr. 88/1971 með samningum séu þeir staðfestir af hlutaðeigandi heildarsamtökum.

Fjöldi frídaga á hverju ári er nokkuð breytilegur af því að sumir þessara daga falla stundum á laugardaga eða sunnudaga. Við talningu þarf einnig að taka tillit til þess að páskadagur og hvítasunnudagur falla alltaf á sunnudag, sem er því í sjálfu sér frídagur hvort sem er....