Sólin Sólin Rís 10:17 • sest 16:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:40 • Sest 15:54 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:12 • Síðdegis: 22:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:36 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða trúarbrögð eru útbreiddust í heiminum?

EMB

Óhætt er að fullyrða að útbreiddustu trúarbrögðin séu kristni. Kristnir telja um 2 milljarða eða um þriðjung jarðarbúa. Í öðru sæti eru múslimar sem eru 1,2 til 1,3 milljarðar eða kringum 20% íbúa jarðar. Næst koma hindúar; 780 til 900 milljónir eða 13-15%. Búddistar eru 360 milljónir eða 6% og eitthvað um 200 milljónir, 3-4%, aðhyllast kínversk trúarbrögð.

Hér hefur verið gerð grein fyrir trúarbrögðum rúmlega þriggja fjórðuhluta jarðarbúa. Um 14-19% eru svo trúleysingjar af einhverju tagi og aðhyllast engin trúarbrögð. Þar eru þá flokkaðir saman yfirlýstir trúleysingjar og fólk sem tekur ekki afstöðu til trúmála (Sjá svar eftir sama höfund við spurningunni Hver er skilgreiningin á trúleysingja?). Þá eru enn ótalin 5-7% sem skiptast niður á fjöldann allan af mismunandi trúarbrögðum.

Það liggur engan veginn í augum uppi hvernig best sé að meta fjölda þeirra sem aðhyllast tiltekin trúarbrögð. Er til dæmis rétt að telja börn með, sem hafa kannski ekki enn tekið afstöðu til trúarbragða? Er rétt að treysta á þær tölur sem trúfélögin sjálf gefa upp eða þarf að spyrja fólkið sjálft?

Þessi upptalning er byggð á áætlunum sem geta verið nokkuð grófar. Það liggur engan veginn í augum uppi hvernig best sé að meta fjölda þeirra sem aðhyllast tiltekin trúarbrögð. Er til dæmis rétt að telja börn með, sem hafa kannski ekki enn tekið afstöðu til trúarbragða? Er rétt að treysta á þær tölur sem trúfélögin sjálf gefa upp eða þarf að spyrja fólkið sjálft? Auðvitað er ómögulegt að spyrja hvern einasta íbúa jarðarinnar um trúarafstöðu og því ljóst að tölur sem þessar eru ekki byggðar á slíkum upplýsingum eingöngu. Í sumum tilfellum er trú fólks áætluð út frá þjóðerni þess eða því hvaða þjóðernishóp það tilheyrir.

Að lokum má geta þess að rómversk-kaþólska kirkjan er langstærsta kristna trúfélagið. Henni tilheyrir 1 milljarður fólks eða helmingur kristinna. Einnig er vert að benda á að þrátt fyrir að gyðingdómur sé talinn meðal helstu trúarbragða veraldar eru gyðingar aðeins 14-18 milljónir, eða 0,2-0,3%. Gyðingdómur á hins vegar heiðurinn af því að vera uppspretta trúarbragða yfir helmings jarðarbúa þar sem bæði kristni og islam eiga rætur sínar að rekja til hans.

Heimildir:

Mynd:

Höfundur

Eyja Margrét Brynjarsdóttir

prófessor í heimspeki og hagnýtri siðfræði

Útgáfudagur

18.5.2001

Síðast uppfært

19.10.2020

Spyrjandi

N.N.

Tilvísun

EMB. „Hvaða trúarbrögð eru útbreiddust í heiminum?“ Vísindavefurinn, 18. maí 2001, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=1621.

EMB. (2001, 18. maí). Hvaða trúarbrögð eru útbreiddust í heiminum? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1621

EMB. „Hvaða trúarbrögð eru útbreiddust í heiminum?“ Vísindavefurinn. 18. maí. 2001. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1621>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar