Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Margir halda að kóngulær séu skordýr en það eru þær ekki. Kóngulær eru áttfætlur. Til eru um 84 tegundir af kóngulóm á Íslandi. Kóngulær og skordýr hafa ýmislegt sameiginlegt svo sem liðskipta fætur og hærðan búk en ákveðin einkenni eru ólík og hjálpa okkur til að þekkja þessa dýrahópa í sundur:
Kóngulær hafa átta fætur en ekki sex.
Búkur kóngulóa skiptist í tvennt en ekki þrennt.
Kóngulær hafa hvorki vængi né fálmara sem flest skordýr hafa.
Skordýr hafa tvö, stór samsett augu en kóngulær hafa mörg, einföld augu.
Þetta svar er eftir grunnskólanemendur á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.
Rósa Björk Þórólfsdóttir og Ingibjörg Jónsdóttir. „Hvað eru margar tegundir af kóngulóm á Íslandi?“ Vísindavefurinn, 13. febrúar 2001, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=1333.
Rósa Björk Þórólfsdóttir og Ingibjörg Jónsdóttir. (2001, 13. febrúar). Hvað eru margar tegundir af kóngulóm á Íslandi? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1333
Rósa Björk Þórólfsdóttir og Ingibjörg Jónsdóttir. „Hvað eru margar tegundir af kóngulóm á Íslandi?“ Vísindavefurinn. 13. feb. 2001. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1333>.