Sólin Sólin Rís 10:17 • sest 16:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:40 • Sest 15:54 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:12 • Síðdegis: 22:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:36 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða dýr étur mest?

Jón Már Halldórsson

Það dýr sem talið er að innbyrði mesta fæðu er steypireyðurin (Balaenoptera musculus).

Steypireyðurin er stærsta dýr jarðarinnar og geta þessir hvalir orðið rúmir 30 metrar á lengd og vegið allt að 180 tonn. Hún étur dýrasvif sem eru örlitlar krabbaflær sem fljóta um í efstu lögum sjávarins.

Talið er að fullorðin steypireyður éti um 4 tonn af þessum krabbaflóm á dag. Hún gerir það með því að gleypa mikinn sjó og þrýsta honum síðan út á milli skíðanna sem koma í staðinn fyrir tennur. Skíðin eru með hárum sem veldur því að örsmáar krabbaflær festast við hárin og verða eftir í munninum á hvalnum. Að síðustu kyngir hvalurinn þessari fæðu niður. Sennilega gleypir steypireyðurin mörg tonn af sjó í hvert skipti með þessum hætti.

Sjá einnig:

Mynd: britannica.com

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

7.2.2001

Spyrjandi

Kristján Bergsteinsson, f. 1992

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvaða dýr étur mest?“ Vísindavefurinn, 7. febrúar 2001, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=1322.

Jón Már Halldórsson. (2001, 7. febrúar). Hvaða dýr étur mest? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1322

Jón Már Halldórsson. „Hvaða dýr étur mest?“ Vísindavefurinn. 7. feb. 2001. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1322>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvaða dýr étur mest?

Það dýr sem talið er að innbyrði mesta fæðu er steypireyðurin (Balaenoptera musculus).

Steypireyðurin er stærsta dýr jarðarinnar og geta þessir hvalir orðið rúmir 30 metrar á lengd og vegið allt að 180 tonn. Hún étur dýrasvif sem eru örlitlar krabbaflær sem fljóta um í efstu lögum sjávarins.

Talið er að fullorðin steypireyður éti um 4 tonn af þessum krabbaflóm á dag. Hún gerir það með því að gleypa mikinn sjó og þrýsta honum síðan út á milli skíðanna sem koma í staðinn fyrir tennur. Skíðin eru með hárum sem veldur því að örsmáar krabbaflær festast við hárin og verða eftir í munninum á hvalnum. Að síðustu kyngir hvalurinn þessari fæðu niður. Sennilega gleypir steypireyðurin mörg tonn af sjó í hvert skipti með þessum hætti.

Sjá einnig:

Mynd: britannica.com...