Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
ForsíðaHvað tekur langan tíma að fá svar hjá ykkur, og fær maður svarið sent í pósthólfið sitt?
Hvað tekur langan tíma að fá svar hjá ykkur, og fær maður svarið sent í pósthólfið sitt?
Það er mjög misjafnt hvað svörin taka langan tíma hjá okkur. Þetta fer bæði eftir því hvernig okkur gengur að finna mann til að svara spurningunni og síðan eftir því hvenær hann hefur tíma til þess. Við þetta bætist að spurningar á Vísindavefnum eru geysimargar. Ef menn fer að lengja eftir svari hvetjum við þá til að senda okkur tölvupóst til að minna okkur á spurninguna. Við getum þá oft gert eitthvað til að flýta fyrir svari.
Nokkrum dögum eftir að svar birtist er spyrjanda yfirleitt tilkynnt í tölvupósti að nú sé það komið. Hann getur þá síðan lesið það á vefsetrinu.
ÞV. „Hvað tekur langan tíma að fá svar hjá ykkur, og fær maður svarið sent í pósthólfið sitt?“ Vísindavefurinn, 30. nóvember 2000, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=1207.
ÞV. (2000, 30. nóvember). Hvað tekur langan tíma að fá svar hjá ykkur, og fær maður svarið sent í pósthólfið sitt? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1207
ÞV. „Hvað tekur langan tíma að fá svar hjá ykkur, og fær maður svarið sent í pósthólfið sitt?“ Vísindavefurinn. 30. nóv. 2000. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1207>.