Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Ljósár er vegalengdin sem ljós ferðast á einu ári í tómarúmi. Því þarf maður að ferðast á ljóshraða til að 'ná þangað á einu ári' en eins og útskýrt er í þessu svari Þorsteins Vilhjálmssonar er það ekki hægt.
Einingin ljósár er mikið notuð í stjarnvísindum þar sem einingar á borð við metra og kílómetra hrökkva ekki til að lýsa óravíddum alheimsins. Eitt ljósár jafngildir 9,4605 * 1015 m. Aðrar einingar sem mikið eru notaðar í stjarnvísindum eru parsek, pc, og stjarnfræðieining (astronomical unit), AU. 1 pc jafngildir 3,26 ljósárum og er heppileg eining í stjarnvísindum, því að hún er nátengd ákveðinni aðferð við að mæla hversu langt stjarna er frá jörðu. 1 AU jafngildir hins vegar 1,4960 * 1011 m og er skilgreint sem meðalfjarlægð jarðar frá sólu.
ÖJ. „Hversu langt er eitt ljósár? Hversu hratt þyrfti maður að ferðast til að ná þangað á einu ári?“ Vísindavefurinn, 24. nóvember 2000, sótt 22. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=1169.
ÖJ. (2000, 24. nóvember). Hversu langt er eitt ljósár? Hversu hratt þyrfti maður að ferðast til að ná þangað á einu ári? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1169
ÖJ. „Hversu langt er eitt ljósár? Hversu hratt þyrfti maður að ferðast til að ná þangað á einu ári?“ Vísindavefurinn. 24. nóv. 2000. Vefsíða. 22. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1169>.