Sólin Sólin Rís 10:52 • sest 15:43 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:25 • Síðdegis: 19:43 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:09 • Síðdegis: 13:45 í Reykjavík
Sólin Sólin Rís 10:52 • sest 15:43 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:25 • Síðdegis: 19:43 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:09 • Síðdegis: 13:45 í Reykjavík
LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Af hverju signir maður sig?

Hjalti Hugason

Krossmarkið er eitt helgasta tákn kristninnar. Menn báru og bera enn kross í keðju um hálsinn, hafa krossa uppi á vegg eða yfir dyrum og svo framvegis. Áður fyrr gerðu menn krossmark yfir öllu sem þeir vildu biðja fyrir eða blessa. Til dæmis gerði fólk krossmark yfir húsdýrum sínum áður en þeim var sleppt á beit. Þá gerðu menn krossmark yfir börnum sínum og sjálfum sér. Var það bæði hugsað til að bægja frá öllu illu og til að helga sig Guði. Margir signa sig áður en þeir fara í hrein föt eftir að hafa verið í baði. Það er meðal annars gert til að minna á skírnina sem er nokkur konar bað.

Höfundur

Hjalti Hugason

prófessor emeritus í guðfræði við HÍ

Útgáfudagur

9.11.2000

Spyrjandi

Bryndís Pétursdóttir, 1990

Tilvísun

Hjalti Hugason. „Af hverju signir maður sig?“ Vísindavefurinn, 9. nóvember 2000, sótt 3. desember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=1109.

Hjalti Hugason. (2000, 9. nóvember). Af hverju signir maður sig? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1109

Hjalti Hugason. „Af hverju signir maður sig?“ Vísindavefurinn. 9. nóv. 2000. Vefsíða. 3. des. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1109>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Af hverju signir maður sig?
Krossmarkið er eitt helgasta tákn kristninnar. Menn báru og bera enn kross í keðju um hálsinn, hafa krossa uppi á vegg eða yfir dyrum og svo framvegis. Áður fyrr gerðu menn krossmark yfir öllu sem þeir vildu biðja fyrir eða blessa. Til dæmis gerði fólk krossmark yfir húsdýrum sínum áður en þeim var sleppt á beit. Þá gerðu menn krossmark yfir börnum sínum og sjálfum sér. Var það bæði hugsað til að bægja frá öllu illu og til að helga sig Guði. Margir signa sig áður en þeir fara í hrein föt eftir að hafa verið í baði. Það er meðal annars gert til að minna á skírnina sem er nokkur konar bað....