Sólin Sólin Rís 10:20 • sest 16:07 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:27 • Sest 15:40 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 11:11 • Síðdegis: 23:50 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:43 • Síðdegis: 17:39 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvernig breytir maður lítra í bandarískt gallon?

EMB

Lítrinn kemst nokkuð nálægt því að samsvara því sem Bandaríkjamenn kalla "quart" en það er, eins og nafnið bendir til, fjórðungur úr galloni. Lítrum er breytt í bandarísk gallon með því að margfalda með 0,26417 eða deila með 3,78541. Einn lítri samsvarar sem sagt rúmlega fjórðungi (0,26417) úr galloni og gallonið samsvarar 3,78541 lítrum.

Til gamans má svo geta þess að í Bandaríkjunum er algengt að fólk kaupi mjólkina sína í gallonabrúsum þótt hún sé líka fáanleg í hálf-gallona og kvart-gallona umbúðum. Því er ekki að furða að bandarískir kæliskápar skuli almennt vera í stærra lagi.

Á netinu má finna fjölmargar vefsíður þar sem hægt er að láta umreikna af einni mælieiningu yfir á aðra. Lesendur geta til dæmis sjálfir reynt að breyta lítrum í gallon, millilítrum í únsur eða jafnvel kílóvattstundum í kílókalóríur með því að skoða Convert-me.com eða Megaconverter.

Sjá einnig:

Höfundur

Eyja Margrét Brynjarsdóttir

prófessor í heimspeki og hagnýtri siðfræði

Útgáfudagur

19.10.2000

Spyrjandi

Kristinn Sigurðsson, fæddur 1984

Tilvísun

EMB. „Hvernig breytir maður lítra í bandarískt gallon?“ Vísindavefurinn, 19. október 2000, sótt 22. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=1012.

EMB. (2000, 19. október). Hvernig breytir maður lítra í bandarískt gallon? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1012

EMB. „Hvernig breytir maður lítra í bandarískt gallon?“ Vísindavefurinn. 19. okt. 2000. Vefsíða. 22. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1012>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Sjá einnig:...