Sólin Sólin Rís 11:22 • sest 15:30 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 24:13 • Sest 13:33 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:31 • Síðdegis: 23:02 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:12 • Síðdegis: 16:52 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaðan kemur orðið byssa?

Guðrún Kvaran

Í Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:98) segir um orðið byssa: ‘sérstök tegund skotvopns; †baukur’. Krossinn merkir að um sé að ræða forna merkingu eða gamalt mál.

Um uppruna og skyldleika við önnur mál segir Ásgeir að orðið sé skylt færeysku byrsa, nýnorsku bøsse, børse, sænsku bøssa, dönsku bøsse, forndönsku bysse. Öll séu norrænu orðin tökuorð úr miðlágþýsku busse. Íslenska orðið byssa sé ef til vill komið úr miðdönsku bysse fremur en beint úr miðlágþýsku busse sem svarar til nýháþýsku Büchse, fornháþýsku buhsa ‘dós, baukur’. „Orðið merkti upphaflega sívalt ílát eða dós og svo hólk eða rörbút og loks byssu.“

Orðið byssa í merkingunni skotvopn þekkist í íslensku frá 15. öld. Í Íslensku fornbréfasafni (VI 1484, sjá ONP 2: 1081) segir:

skutu einn med byssu suo hann bleif þar daudr.

Heimildir og mynd:
  • Ásgeir Blöndal Magnússon. 1989. Íslensk orðsifjabók. Orðabók Háskólans, Reykjavík.
  • ONP = Ordbog over det norrøne prosasprog. 2000. 2 ban–da. Den arnamagnæanske kommission, København.
  • Mynd: GoodFon.com. (Sótt 27.6.2024).

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

31.7.2024

Spyrjandi

Arnar Smári Erlingsson

Efnisorð

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið byssa?“ Vísindavefurinn, 31. júlí 2024, sótt 21. desember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=86695.

Guðrún Kvaran. (2024, 31. júlí). Hvaðan kemur orðið byssa? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=86695

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið byssa?“ Vísindavefurinn. 31. júl. 2024. Vefsíða. 21. des. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=86695>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...